Enski boltinn

Reyna að lesa eitt­hvað út úr fagni Trents Alexander-Arnold

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Trent Alexander-Arnold fagnaði sigurmarki sínu ber að ofan og með treyju sína á hornfánanum.
Trent Alexander-Arnold fagnaði sigurmarki sínu ber að ofan og með treyju sína á hornfánanum. Getty/Liverpool FC

Trent Alexander-Arnold var hetja Liverpool um páskahelgina en hann skoraði þá sigurmarkið á móti Leicester aðeins nokkrum mínútum eftir að hafa komið inn á völlinn sem varamaður. Eftir leikinn vildi bakvörðurinn þó ekki segja neitt um framtíð sína hjá Liverpool.

Alexander-Arnold hefur verið meiddur síðustu vikur en í millitíðinni hafa spænskir og enskir fjölmiðlar svo gott sem staðfest það að hann sé á förum til Real Madrid í sumar. Það sem meira er Liverpool fengi ekki krónu fyrir eina af sínum stærstu stjörnum.

Liverpool hefur aftur á móti framlengt samninga sína við Mohamed Salah og Virgil van Dijk sem voru báðir að renna út á samningi eins og Alexander-Arnold.

Það var mikil dramatík í gangi eftir að Alexander-Arnold skoraði sigurmarkið mikilvæga á móti Leicester en Liverpool er fyrir vikið aðeins einum sigri frá tuttugasta enska meistaratitlinum.

Hengdi treyjuna á hornfánann

Alexander-Arnold fagnaði með því að rífa sig úr treyjunni og hengja hana upp á hornfánann. Sumir eru farnir að reyna að lesa eitthvað í þessi fagnaðarlæti hans.

„Ef þú ert á förum frá fótboltafélagið þá fagnar þú ekki svona,“ sagði Clinton Morrison, sérfræðingur á BBC.

„Það er eitthvað kraftmikið í augunum hans eftir að hann skoraði þetta mark. Svo hljóp hann beint til stuðningsmanna Liverpool,“ sagði Gary Neville.

Sérfræðingarnir voru að reyna að lesa eitthvað í fagnaðarlæti Trents því hann sjálfur gaf ekkert upp.

Mun fylgja honum alla tíð

„Ég vil ekki tala um stöðuna hjá mér. Svona dagar eru alltaf sérstakir. Þetta er einstök gleðistund sem mun fylgja mér alla tíð,“ sagði Trent Alexander-Arnold sjálfur eftir leikinn.

Það mátti heyra eitthvað smá baul þegar Alexander-Arnold kom inn á sem varamaður en stuðningsmenn Liverpool voru fljótir að hætta öllu slíku eftir að hann skoraði. Þá var þessi uppaldi Liverpool strákur orðinn einn af þeim á ný.

Hann ýtti mér fram

Alexander-Arnold sagði líka frá því að fyrirliðinn Virgil van Dijk hafi ýtt honum í átt að stuðningsmönnunum.

„Hann ýtti mér fram svo ég fengi að upplifa þetta. Stuðningsmennirnir hafa verið magnaðir á þessu tímabili og þeir hjálpuðu okkur enn á ný í þessum leik. Við erum að gera þetta fyrir okkur sjálfa, fyrir fjölskyldur okkar og fyrir okkar stuðningsfólk,“ sagði Alexander-Arnold.

Hvort þetta var eins konar kveðjustund eða hvort að Alexander-Arnold taki U-beygju og semji aftur við Liverpool verður að koma í ljós. Það verður líka fróðlegt að sjá viðtökurnar sem hann fær í næsta leik Liverpool á Anfield.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×