Skoðun

Um­bætur í Hafnar­firði

Rósa Guðbjartsdóttir og Guðlaug Kristjánsdóttir skrifar

Niðurstöður ítarlegrar greiningar á fjárhag og rekstri stofnana Hafnarfjarðarbæjar liggja nú fyrir. Það var eitt af fyrstu verkefnum nýs meirihluta Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar í bæjarstjórn að fá óháða ráðgjafa til þess verks. Ráðgjafarnir lögðu fram hundruð tillagna um hvernig bæta mætti reksturinn, ná fram meiri skilvirkni í kerfinu og almennt ráðstafa betur fjármunum bæjarbúa með betri nýtingu innviða í huga og án þess að skerða þjónustu til íbúanna. Nokkrar tillagnanna, einkum þær er lutu að breytingum á stjórnkerfinu, hafa þegar komið til framkvæmda. Meðal annars hefur rekstrar-, fjármála- og lögfræðistarf bæjarins verið styrkt. Aðrar tillögur hafa verið lagðar fram og eru til lýðræðislegrar umfjöllunar í viðeigandi ráðum, nefndum og/eða hjá stjórnsýslu bæjarins.

Næðu allar tillögur ráðgjafanna fram að ganga er talið að árleg útgjöld gætu minnkað um allt að 600 milljónir króna.

Hafnarfjarðarbær hefur um árabil verið í hópi allra skuldsettustu sveitarfélaga landsins. Fyrstu verk meirihluta Bjartrar framtíðar og Sjálfstæðisflokks voru því að ráða bæjarstjóra með sterkan grunn í rekstri og fjármálum sveitarfélaga og greina síðan tækifæri bæjarins til úrbóta á markvissan og ítarlegan hátt með aðstoð utanaðkomandi sérfræðinga. Í aðdraganda síðustu kosninga lá fyrir að brýnt væri að gera breytingar við stjórnun og rekstur sveitarfélagsins. Fyrir lá að sveitarfélagið hefði einfaldlega ekki borð fyrir báru kæmi til mikilla óvæntra útgjalda, vegna þungrar skuldastöðu. Nýlegar og fyrirsjáanlegar launahækkanir og auknar lífeyrisskuldbindingar eru því mikil áskorun fyrir Hafnarfjarðarbæ.

Nýr meirihluti gerði sér grein fyrir því að viðsnúningur í fjárhag bæjarins yrði eitt af stóru verkefnunum á kjörtímabilinu. Nú er hins vegar ljóst að róðurinn er mun þyngri en áætlanir á síðasta kjörtímabili gerðu ráð fyrir. Öll sveitarfélög takast nú á við aukinn kostnað í kjölfar kjarasamningsbreytinga og skuldsetning fyrri ára er íþyngjandi í þeirri glímu.

Rekstrargreining bæjarins, eitt af forgangsverkefnum nýs meirihluta, er mikill styrkur í þeirri áskorun sem fram undan er.

Nú þarf að taka höndum saman við að rétta fjárhaginn til framtíðar með markvissum hætti, snúa vörn í sókn og efla bæjarfélagið. Fjölmörg umbótaverkefni hafa þegar farið af stað og önnur eru í undirbúningi í ráðum og nefndum bæjarins. Við ætlum að koma Hafnarfirði í fremstu röð.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×