Jólabaksturinn er rétt handan við hornið og því er kjörið að taka smáforskot á sæluna. Þessar kökur má samt baka hvar og hvenær sem er, það þarf ekki að binda þær við jólatímann. Mér finnst gott að fá mér smákökur af og til, enda tekur enga stund að henda í eina uppskrift.
Rjómaostatoppar með hvítu súkkulaði
220 g smjör
200 g hreinn rjómaostur
225 g púðursykur
225 g sykur
2 egg
4 tsk vanillusykur
600 g hveiti
½ tsk salt
3 tsk kanill
1 tsk lyftiduft
4 msk mjólk
100 g hvítt súkkulaði
Til að rúlla deiginu í:
100 g sykur
2 tsk kanill
Aðferð:
Hitið ofninn í 180°C. Hrærið smjör, rjómaost, sykri saman þar til blandan verður kremkennd. Bætið eggjum út í, einu í einu og hrærið vel á milli.
Blandið vanillu,hveiti, lyftidufti, salti og kanil saman við deigið og hrærið vel í. Bætið mjólkinni út í smáum skömmtum. Kælið deigið í 7 – 10 mínútur. Mótið litlar kúlur með tveimur teskeiðum og rúllið upp úr kanilsykrinum.
Setjið kökurnar á pappírsklædda ofnplötu og inn í ofn við 180°C í 8 – 10 mínútur eða þar til þær eru gullinbrúnar.
