
Styttri vinnudagur – hagur okkar allra
Það er mikið fagnaðarefni að ríkisvaldið hyggist setja af stað samskonar verkefni líkt og tilkynnt var fyrir skömmu í tengslum við kjarasamninga ríkisins við aðildarfélög BSRB. Markmið þess verður að kanna hvort stytting vinnuviku úr 40 vinnustundum í 36 leiði til gagnkvæms ávinnings starfsmanna og þeirra stofnana sem verða fyrir valinu.
Áfangamat stendur nú yfir á verkefninu í Reykjavík, en miðað við þau gögn sem þegar liggja fyrir og upplifun stjórnenda á starfstöðvunum virðist verkefnið hafa gengið vel. Það hefur kallað á breytt vinnufyrirkomulag og tímastjórnun og einhverja hnökra hefur þurft að lagfæra, en allt hefur það verið yfirstíganlegt.
Grunnur að langtímabreytingu
Reykjavíkurborg hefur vandað til verka enda er hér verið að leggja grunn að langtímabreytingu í samfélagi okkar. Þar þarf meira til en eitt tilraunaverkefni og jafnvel þótt allar líkur séu á að borgin haldi áfram með verkefni af þessum toga vekur það von og gleði að sjá fleiri atvinnurekendur hefjast handa. Reykjavíkurborg er reiðubúin að miðla þeirri þekkingu sem hefur skapast undanfarna mánuði og mun gjarnan taka þátt í samstarfi um næstu skref, við ríkið og aðra atvinnurekendur ef svo ber undir.
Á sama tíma og þessi tilraunaverkefni standa yfir er nauðsynlegt að gera úttekt á þjóðhagslegri arðsemi þess að stytta vinnuvikuna. Þar verður að taka mið af tækifærum fólks á vinnumarkaði með tilliti til aðstæðna, s.s. kyns, barnafjölda, aldurs, fötlunar og uppruna. Verkefnið getur bæði jafnað tækifæri ólíkra hópa á vinnumarkaði og stuðlað að bættri og sanngjarnari nýtingu á kröftum okkar allra. Á sama tíma hefur þetta áhrif á aðbúnað og þjónustu við börn, eldra fólk, fatlað fólk bæði á stofnunum og heimilum og í reynd á menningu og viðhorf í samfélaginu öllu.
Það er til mikils að vinna, ríki og borg eiga að hjálpast að og tryggja að þetta mikilvæga verkefni takist vel. Styttri vinnuvika er hagur okkar allra.
Höfundar sitja í stýrihópi um styttingu vinnuvikunnar.
Skoðun

Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Iðjuþjálfar – mikilvægur mannauður í geðheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar
Erna Rut Elvarsdóttir,Lilja Logadóttir, Rebekka Lind Hjaltadóttir,Sandra Dís Sigurðardóttir skrifar

Saga Israa á Gaza og hvernig hægt er að verða að liði
Katrín Harðardóttir,Israa Saed skrifar

Fordómar frá sálfélagslegu sjónarhorni
Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar

Er aldur bara tala?
Teitur Guðmundsson skrifar

Íslendingar flytja út fisk og líka ofbeldismenn
Guðný S. Bjarnadóttir skrifar

Iðjuþjálfar í leik- og grunnskólum: Tækifæri í baráttunni gegn agavanda og skólaforðun
Hekla Björt Birkisdóttir,Hrefna Dagbjört Arnardóttir,Inga Fríða Guðbjörnsdóttir,Íris Kristrún Kristmundsdóttir skrifar

Frans páfi kvaddur eða meðtekinn?
Bjarni Karlsson skrifar

Lægjum öldurnar
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Að hata einhvern sem þú þarft á að halda?
Katrín Pétursdóttir skrifar

Íslenskar pyndingar
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

SFS, Exit og norska leiðin þeirra
Jón Kaldal skrifar

Friður - í framsöguhætti eða viðtengingarhætti?
Bryndís Schram skrifar

Næringarfræði er lykillinn að betri heilsu, viltu vera með?
Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar

Löngu þarft samtal um hóp sem gleymist!
Katarzyna Kubiś skrifar

Menntun fyrir öll – nema okkur
Haukur Guðmundsson skrifar

Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika
Davíð Bergmann skrifar

Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Að sækja gullið (okkar)
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Til hamingju blaðamenn!
Hjálmar Jónsson skrifar

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar

Börn í skugga stríðs
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Gunnar Örn Vopnfjörð Þorsteinsson skrifar

Hvernig gerum við Grundarhverfi enn betra?
Ævar Harðarson skrifar

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar