
Umhverfismál – grímulausar vangaveltur
Virkjanir og verksmiðjur eru eitt dæmið. Virkjanir eru oft risaframkvæmdir þar sem land fer undir vatn eða brennisteini er hleypt úr jarðhitageymum. Allar þessar virkjanahugmyndir eiga líka að knýja málmbræðslur sem puðra út úr sér gróðurhúsalofttegundum. Geta neikvæðu umhverfisáhrifin verið eitthvað skýrari?
Reyndar er heildarmyndin flóknari en þetta því að nýjar virkjanir á Íslandi nota umhverfisvænni orkugjafa en jarðefnaeldsneyti til að framleiða vörur á alþjóðamarkað sem einmitt bráðvantar vörur með mildara kolefnisspor. Til að gera myndina enn flóknari þá framleiða þessar málmbræðslur annars vegar ál og hins vegar kísil. Ál er að miklu leyti notað til að létta farartæki til að minnka mengun auk þess sem ál er líklega besti málmurinn í endurvinnslu. Aukin eftirspurn eftir kísilmálmi nú er vegna aukinnar notkunar á sólarsellum sem beisla sólarorkuna og draga þannig úr notkun jarðefnaeldsneytis.
Þessar verksmiðjur þurfa ekkert endilega að vera hér á landi en eftirspurnin eftir vörunni mun tryggja að þær rísa einhvers staðar í heiminum. Við höfum sem sagt val um frekari auðlindanýtingu og þurfum því að vega og meta kosti og galla frekari nýtingar. Hvað sem ákveðnir aðilar segja þá fylgir öllum virkjunum talsvert rask og hvað sem sumir segja þá skila virkjanir hellings tekjum í þjóðarbúið. Ekki verður t.d. falin sú staðreynd að í Hálslóni er nú vatn þar sem áður var þurrlendi og jafn erfitt er að breiða yfir þá stöðu að þjóðin á nú hundruð milljarða í Landsvirkjun þar sem áður var lítið sem ekkert.
Hvað með ljótu línurnar?
Hvað með ljótu línurnar sem flytja rafmagnið og skera munu hálendið í sundur? Þarf yfirleitt eitthvað að uppfæra þessar línur? Svarið er því miður ekki auðvelt út frá umhverfinu. Núverandi byggðarlína er fulllestuð víða. Þetta þýðir einfaldlega að þó að nóg sé til af orku þá er kerfið okkar með kransæðastíflu og kemur ekki nógu mörgum rafeindum t.d. til Akureyrar. Það má líkja þessu við mjólkurframleiðslu, það er nóg til af mjólkurlítrum en ef það yrði umferðarteppa á þjóðveginum þá væri ekki alltaf hægt að bjóða Akureyringum næga mjólk. Mjólkursamsalan á Akureyri er einmitt dæmi um fyrirtæki sem þarf að keyra á ósjálfbærri dísilolíu endrum og sinnum þegar raflínurnar anna ekki eftirspurn. Akureyri er frábær staður sem án efa mun eflast talsvert á komandi árum með tilheyrandi orkuþörf. Ef háspennulínur verða ekki uppfærðar er alltaf möguleiki að keyra bara dísilrafstöðvar á staðnum, en þær menga víst sem er jú slæmt fyrir bæ sem stefnir hraðbyri á kolefnishlutleysi.
En þarf að fara yfir hálendið? Ekki endilega, Landsnet hefur lagt fram annan möguleika, þ.e. að hringtengja með fram ströndum. Málið er að þar eru líka ómetanlegar náttúruperlur alveg eins og á hálendinu. Hvernig veljum við á milli? Að grafa línurnar í jörð er vissulega möguleiki, en víða á Íslandi yrði meira óafturkræft rask vegna jarðstrengs en loftlínu. Það er sem sagt flókið að vera umhverfisvænn Íslendingur og því þarf að leggja fram staðreyndir og upplýsingar í stað þess að beita upphrópunum og alhæfingum.
Eina leiðin er að kynna hvert verkefni fyrir sig með skýrum hætti líkt og Landsvirkjun gerir nú með mögulegan vindlund við Búrfell. Þar getur hver og einn skoðað áhrifin á metnaðarfullri vefsíðu án þess að þrýstihópar séu að matreiða áhrifin hver með sínu nefi. Þannig getur almenningur, eigandi auðlindarinnar, melt þetta og tekið ákvörðun. Þó að endanleg niðurstaða yrði að allt verði verndað eða virkjað þá er óskynsamlegt að mínu mati að taka einhverja skemmri skírn í þeirri ákvörðun án þess að grandskoða hvern virkjanakost fyrir sig á sínum forsendum. Svo verða flestir að sætta sig við að endrum og sinnum höfum við sterka og fullgilda skoðun á málum en meirihluti manna er einfaldlega á öndverðum meiði.
Skoðun

Námsfærni nemenda í íslenskum skólum: Eigum við að lækka rána?
Sigríður Ólafsdóttir skrifar

Þegar mannshjörtun mætast
Jóna Hrönn Bolladóttir,Bjarni Karlsson skrifar

Horft til einkunna og annarra þátta við innritun í framhaldsskóla
Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar

Kristján á Sprengisandi lendir í ágjöf
Björn Ólafsson skrifar

Unglingar eiga skilið heildstætt mat frá framhaldsskólum
Sigurður Kári Harðarson skrifar

Stöðvum glæpagengi á Íslandi
Hjalti Vigfússon skrifar

Jafnlaunavottun - „Hverjir græða á jafnlaunavottun“
Gunnar Ármannsson skrifar

Gervigreind í skólum: Tækifæri sem fáir eru að ræða?
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Enginn matur og næring án sérfræðiþekkingar
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

Öll endurhæfing er í eðli sínu starfsendurhæfing
Sveindís Anna Jóhannsdóttir skrifar

„Bíddu, varst þú ekki að biðja um þessa greiðslu?“
Heiðrún Jónsdóttir skrifar

Rétta leiðin til endurreisnar menntakerfisins?
Birgir Finnsson skrifar

Tvær dætur á Gaza - páskahugvekja
Viðar Hreinsson skrifar

Ef það líkist þjóðarmorði – þá er það þjóðarmorð!
Ólafur Ingólfsson skrifar

Vinnustaðir fatlaðs fólks
Atli Már Haraldsson skrifar

Þjónustustefna sveitarfélaga: Formsatriði eða mikilvægt stjórntæki?
Jón Hrói Finnsson skrifar

Blóð, sviti og tár
Jökull Jörgensen skrifar

Ertu knúin/n fram af verðugleika eða óverðugleika?
Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar

Er hægt að stjórna bæjarfélagi með óskhyggju?
Sigurþóra Bergsdóttir skrifar

Styrkleikar barna geta legið í öðru en að fá hæstu einkunnir
Anna Maria Jónsdóttir skrifar

Listin við að fara sér hægt
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Kosningar í stjórn Visku: Þitt atkvæði skiptir máli!
Eydís Inga Valsdóttir skrifar

Ábyrgð yfirvalda á innra mati á skólastarfi
Anna Greta Ólafsdóttir skrifar

Bjánarnir úti á landi
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar

Hvað kostar EES samningurinn þjóðina?
Sigurbjörn Svavarsson skrifar

En hvað með loftslagið?
Emma Soffía Elkjær Emilsdóttir,Eiríkur Hjálmarsson skrifar

Ráðherra og valdníðsla í hans nafni
Örn Pálmason skrifar

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 1/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar