Ekki kemur til greina að ógilda miðasöluna á tónleika Justin Bieber á næsta ári samkvæmt Ísleifi Þórhallssyni, framkvæmdastjóra Senu, sem stendur að baki tónleikunum.
Fyrirkomulag miðasölunnar hefur verið harðlega gagnrýnt af þeim sem ekki náðu í miða en svo virðist sem að ekki hafi væri hægt að tryggja að þeir sem fengið hefðu lægra númer í miðasöluröðinni gætu keypt miða á tónleikana á undan þeim sem fengu hærri númer vegna þess hversu hratt var hleypt inn.
Hafa ósáttir aðdáendur kallað eftir því, bæði í athugasemdum við fréttir Vísis og á samfélagsmiðlum að miðasalan verði hreinlega ógild en í samtali við fréttastofu þvertók Ísleifur Þórhallsson fyrir það og sagði slíkt ekki koma til greina.
Ekki kemur til greina að ógilda miðasöluna

Tengdar fréttir

Ásókn í Bieber-miða á svarta markaðinum
Margir leita nú á sölusíður á netinu til að sækjast eftir því að kaupa miða á uppsprengdu verði á tónleika Justin Bieber.

Uppselt á Bieber: Seldist upp á hálftíma
Uppselt er á tónleika Justin Bieber.

Tix.is um Bieber-miðasöluna: Of hratt hleypt inn í röðina
Mikil reiði ríkir meðal þeirra sem ekki nældu sér í miða í morgun á tónleika Justin Bieber.

Löng biðröð eftir miðum á Bieber: Miðasala hófst í morgun
Tæplega 10.000 miðar eru í boði en miðasalan hófst klukkan tíu.

Sena: Skoðum möguleikana á því að halda aukatónleika með Bieber
Forsvarsmenn Senu segja að það sé langsótt en að þeir muni skoða hvort að hægt sé að halda aukatónleika með Justin Bieber hér á landi.