Hjördís Anna, Hálfdán Helgi og Matthías Davíð Matthíasbörn hafa áhuga á mörgu, til dæmis tónlist. Hjördís Anna spilar á básúnu, Hálfdán Helgi æfir á trommur/slagverk og Matthías Davíð á trompet.
Eruð þið í hljómsveit?
HA: Já, við erum öll í hljómsveit sem heitir Skýjaglópar, ásamt tveimur öðrum krökkum sem heita Brynjar og Elín. Ég er líka í Skólahljómsveit Kópavogs og spila á básúnu. Svo er ég líka í hljómsveit sem heitir Svarta Sól, í henni er ég með Elínu vinkonu minni og bróður mínum Hálfdáni.
HH: Ég er í Skólahljómsveit Kópavogs og Skýjaglópum og einnig í sveitinni með Hjördísi og Elínu vinkonu minni.
MD: Ég er í Skýjaglópum og Skólahljómsveit Kópavogs.
Hvar spilið þið helst?
Öll: Skýjaglópar spila mest í kirkjum og Skólahljómsveit Kópavogs spilar úti um allt.
HH: Já, Skýjaglópar sungu til dæmis sunnudagaskólalag ársins sem er eftir Gumma Kalla, prest í Lindakirkju.
Hvað fleira eruð þið helst að bralla?
HA: Ég er í Barnakór Ástjarnarkirkju og Unglingagospelkór Lindakirkju.
HH: Við Matthías erum með kvikmyndafélag sem heitir MH kvikmyndir og gerum alls konar myndir og setjum á Facebook-síðu MH kvikmynda.
MD: Ég hef mikinn áhuga á töfrabrögðum og kallast Matti Magic þegar ég er að sýna. Leiklist finnst mér mjög skemmtileg og ég lék langafann í Óvitum og fleira, en ég er núna að æfa fyrir Útvarpsleikhúsið í Elsku Míó minn og að leika í Línu Langsokk. Svo er líka gaman að búa til stuttmyndir með Hálfdáni.
Hafið þið einhvern tíma til að leika ykkur?
HA: Já, oftast á fimmtudögum og um helgar þegar ég er ekki að syngja einhvers staðar eða spila, annars er ég alltaf á fullu alla daga.
HH: Ég hef nægan tíma til að leika mér þrátt fyrir allt það sem ég er að gera.“
MD: Nei! … jú, kannski stundum.
Hvernig finnst ykkur skemmtilegast að leika ykkur?
HA: Mér finnst mjög skemmtilegt í íþróttum, til dæmis í fótbolta og á skíðum. Eitt sinn þegar ég var að prufa snjóbretti með frænku minni í fyrsta skipti þá datt ég á höndina og handleggsbrotnaði en fyrir utan það þá finnst mér snjóbretti mjög skemmtilegt.
HH: Mér finnst skemmtilegast að leika mér bara við að búa til kvikmyndir.
MD: Að æfa mig í töfrabrögðum og búa til leiksýningar.
Eruð þið farin að velta fyrir ykkur hvað ykkur langar að verða þegar þið verðið stór?
HA: Ég ætla að verða tannlæknir, tónlistarkona og söngkona.
HH: Já, mig langar rosalega að verða kvikmyndagerðarmaður, söngvari og líka trommari.
MD: Ég mundi vilja verða leikari!
Spila, syngja og leika
