
Hvers virði er Ísland?
Það er jú vegna náttúrunnar sem stærstur hluti ferðamanna sækir Ísland heim og nýtur þess að ferðast um og skoða fjölbreytta flóru landsins og náttúruperlur.
Í dag höfum við Framkvæmdasjóð ferðamannastaða og lög um gistináttagjald. Sjóðurinn er í dag fjársveltur og getur ekki sinnt því hlutverki sínu að vernda og byggja upp þau svæði landsins sem viðkvæm eru fyrir mikilli umferð ferðamanna og eru mörg hver í mikilli niðurníðslu. Enn fremur á sjóðurinn að sinna því hlutverki að byggja upp nýja áfangastaði svo dreifa megi álaginu af auknum fjölda ferðamanna betur um allt land. Þjóðgarðar og friðlýst svæði fá í dag hluta af gistináttagjaldinu en í tillögum um náttúrupassa er ekki gert ráð fyrir því að tekjur af honum renni til þessara svæða.
Samtök ferðaþjónustunnar hafa varað mjög við hugmyndum um náttúrupassa, telja að hann skaði ímynd landsins og verði illframkvæmanlegur og vilja þess í stað efla gistináttagjaldið. Ég tek undir það og tel rétt að styrkja þann tekjustofn sem við höfum í gistináttagjaldinu og skoða möguleika á að leggja komugjald á flugfarseðla yfir háannatímann og fara þannig blandaða leið almennrar skattheimtu.
Þolum við alla þessa ágengni?
Það að landsmenn þurfi að kaupa sér náttúrupassa til þess að ferðast um sitt eigið land stríðir gegn almannarétti og gerir ekkert annað en hefta aðgengi þjóðfélagshópa að náttúru landsins og mismuna þannig fólki eftir efnahag. Málum hefur verið stillt þannig upp í umræðunni að ef ekki komi til náttúrupassi þá sé voðinn vís og náttúran drabbist niður og engin önnur tekjuöflun sé möguleg.
Þannig er það ekki og það má ekki dragast að Framkvæmdasjóður ferðamannastaða verði fjármagnaður þannig að hægt sé að mæta því að hingað komi milljón ferðamenn á ári eins og stefnir í fljótlega.
Landið hefur ekki burðarþol til að þola slíka ágengni til lengdar og ef við ætlum að láta taka okkur alvarlega í sjálfbærri ferðaþjónustu sem laðar að gesti til þess að njóta óspilltrar náttúru og fjölda náttúruminja um allt land þá verðum við að bretta upp ermarnar og ekki seinna en strax!
Það gengur ekki að einkaaðilar fari að selja inn á sín afmörkuðu svæði og við önnur svæði verði sett upp söluhlið þar sem sýna þarf náttúrupassa. Þessi ásýnd landsins fyrir ferðamenn er fráhrindandi og óaðlaðandi og mun fljótt skila sér í neikvæðri umræðu um landið sem hefur fengið þá ímynd eftir mikla markaðssetningu að vera í hópi þeirra landa sem skarta fjölbreyttri náttúrufegurð og þar sem fjölbreytni er höfð í hávegum. Það er auðvelt að eyðileggja árangur áratuga vinnu við markaðssetningu í ferðamálum með illa ígrunduðum tillögum um náttúrupassa sem þingmenn úr öllum flokkum hafa gagnrýnt undanfarið ásamt félagasamtökum og almenningi í landinu.
Við megum því engan tíma missa. Ekki einungis vegna ótta við að ferðamönnum til landsins fækki heldur vegna þess að við erum vörslumenn náttúrunnar og það eru takmörk fyrir því hve Ísland þolir mikla ágengni ferðafólks á viðkvæmt vistkerfi landsins.
Þess vegna spyr ég „hvers virði er Ísland“, þegar náttúra landsins er annars vegar og fjármagna þarf viðhald hennar, uppbyggingu innviða og umhirðu ferðamannastaða. Mitt svar er að það sé fjársjóður hverrar þjóðar að varðveita sem best náttúruna og við höfum til þess verkfæri í dag sem er gistináttagjaldið sem má útfæra betur í bland við komugjald á flugfarseðla.
Við skulum því ekki eyða orku í vondar tillögur um náttúrupassa. Málið þolir ekki bið og Framkvæmdasjóður ferðamannastaða verður að fá fjármagn strax til að rísa undir verkefnum sínum þar til lög um fjármögnun hans verða að veruleika.
Skoðun

Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika
Davíð Bergmann skrifar

Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Að sækja gullið (okkar)
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Til hamingju blaðamenn!
Hjálmar Jónsson skrifar

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar

Börn í skugga stríðs
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Gunnar Örn Vopnfjörð Þorsteinsson skrifar

Hvernig gerum við Grundarhverfi enn betra?
Ævar Harðarson skrifar

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar

Af hverju er Framsóknarfólk hamingjusamast?
Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar

Norska leiðin hefur gefist vel – í Póllandi
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Opið hús fyrir útvalda
Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar

Af hverju hræðist fólk kynjafræði?
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hlustum á okkar landsliðskonur - sýnum Ísrael rauða spjaldið
Hrönn G. Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar

Hópnauðganir/svartheimar!
Davíð Bergmann skrifar

Valdið og samvinnuhugsjónin
Kjartan Helgi Ólafsson skrifar

NPA breytti lífinu mínu
Sveinbjörn Eggertsson skrifar

Hefur þú tilkynnt um ofbeldi gegn barni?
Alfa Jóhannsdóttir skrifar

Gildi kærleika og mannúðar
Toshiki Toma skrifar

Hvernig tryggjum við samkeppnishæfni þjóðar?
Jón Skafti Gestsson skrifar

Í minningu Frans páfa - sem tók sér nafn verndardýrlings dýra og náttúru
Árni Stefán Árnason skrifar

Flottu kjötauglýsingarnar í blöðunum...
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Grafarvogsgremjan
Þorlákur Axel Jónsson skrifar

Er ég að svindla? – Um sambýli manns og gervigreindar í sköpun og þekkingu
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Fjármögnuðu stríðsvél Rússlands
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar