Í nútímamataræði skortir fólk oft trefjar og góðan bita í millimál Þessa getur þú tekið með þér í vinnuna og sent börnin með sem nesti í skólann.
Fíkju- og döðluorkustöng
2 msk. kókosolía
1½ bolli hafrar
1 bolli og 3 msk. pistasíur
¼ vanillubaunaduft (getur notað tsk. af vanilludropum)
1 bolli þurrkaðar fíkjur, saxaðar
1 bolli þurrkaðar sveskjur
½ tsk. appelsínubörkur
1 msk. appelsínusafi
1 tsk. sjávarsalt
dass af kanil (má sleppa)
Hitaðu ofninn í 200 gráður.
Taktu bökunarplötu og klæddu með smjörpappír.
Hitaðu kókosolíuna í pönnu á miðlungshita, bættu höfrunum við og hrærðu þar til verður gullinbrúnt.
Skelltu þessu á disk og í frysti til að kæla.
Malaðu 3 msk. pistasíur í matvinnsluvél þar til verður að fínu dufti og geymdu, þú notar þetta í lokin.
Skelltu vanilluduftinu, fíkjunum, sveskjunum, saltinu, hálfum bolla af pistasíum, appelsínuberki og safa og 2 msk. af vatni út í og blandaðu vel saman.
Skelltu þessu í stóra skál og taktu hafrablönduna úr frysti og skelltu út í.
Grófsaxaðu hálfan bolla af pistasíuhnetum og settu út í blönduna og blandaðu saman.
Bleyttu hendurnar og hnoðaðu þetta og sléttu úr á bökunarplötunni.
Sáldraðu fínsöxuðu pistasíuhnetunum yfir og bakaðu í 25 mínútur.
Þessi uppskrift gefur af sér tólf orkustangir sem geymast í allt að tvær vikur í loftþéttum umbúðum.
Búðu til orkustöng
