Frumsýningarkvöld Leiknis í metabækurnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. maí 2015 06:30 Sindri Björnsson fagnar marki sínu sem kom Leikni í 2-0 eftir þrettán mínútur. Vísir/Valli
Leiknismenn áttu algjöra draumabyrjun á frumsýningarkvöldi félagsins í efstu deild en Breiðholtsliðið vann þá 3-0 sigur á Val í 1. umferð Pepsi-deildar karla í sunnudagskvöldið. Ekkert félag hefur unnið stærri sigur í sínum fyrsta leik meðal þeirra bestu en Fjölnir (2008) og Skallagrímur (1997) unnu líka 3-0 sigra í fyrsta leik sínum í efstu deild. Alls hafa bara 6 af 22 félögum sem þreytt hafa frumraun sína í efstu deild frá 1955 náð að vinna sinn fyrsta leik. Leiknismenn náðu reyndar ekki meti Þórsara (frá 1977) yfir stystu bið eftir fyrsta marki þrátt fyrir að vera mjög nálægt því en Leiknisliðið bætti hins vegar metin yfir stystu bið eftir marki númer tvö og þrjú. Þórsarar biðu aðeins í sex mínútur eftir að skora sitt fyrsta mark á sínu fyrsta tímabili í efstu deild 1977 en þeir voru líka búnir að fá á sig þrjú mörk eftir 63 mínútna leik í 3-2 tapi í Keflavík. Fyrsta mark Leiknis í leiknum kom eftir átta mínútur. Leiknisliðið var hins vegar komið í 2-0 eftir aðeins þrettán mínútur á Val og setti með því nýtt met en gamla metið átti lið ÍBH frá því fyrir 58 árum. Albert Guðmundsson var þarna nýkominn heim frá ævintýrum sínum í Frakklandi en hann var spilandi þjálfari Hafnfirðinga í frumraun þeirra meðal þeirra bestu og skoraði sjálfur annað mark liðsins á tímabilinu á 37. mínútu. Leiknismenn bættu síðan 47 ára met Eyjamanna þegar þeir skoruðu sitt þriðja mark á 71. mínútu. Eyjamenn innsigluðu 3-1 sigur á Val í fyrstu umferðinni 1968 með því að skora þriðja mark sitt á 81. mínútu leiksins sem fór fram í Eyjum. Leiknismenn hafa ennfremur ekki fengið á sig mark eftir 90 mínútur í efstu deild og eru sjöunda félagið sem heldur hreinu í fyrsta leik. Nú er að sjá hvort Leiknismenn ná að ógna varnarmetunum í næstu leikjum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Hann hefði getað fótbrotið mig“ Enski boltinn Átti bestu byrjun á hring í sögu Masters Golf „Vandamálið er mín megin og ég verð að bæta mig“ Formúla 1 Onana ekki með gegn Newcastle Enski boltinn Howe lagður inn á spítala og missir af leiknum Enski boltinn VAR í Bestu deildina? Íslenski boltinn Sló kúluna í rassinn á starfsmanni Golf Júlíus spilaði með brákað bein en verður frá næstu vikur Fótbolti Dagskráin í dag: Masters, Besta, Bónus, Formúlan og NBA 360 Sport Börsungar sluppu með sigur eftir sjálfsmark Fótbolti Fleiri fréttir VAR í Bestu deildina? Völsungur vann vítaspyrnukeppni á afmælisdeginum Adam Ægir á heimleið Formaðurinn ósáttur við tveggja leikja bannið og aganefnd Njarðvík og ÍR fögnuðu bæði tveimur sigrum í kvöld Uppgjörið: Breiðablik - Valur 0-1 | Valskonur meistarar meistaranna Blikum spáð öðrum titli en stutt stopp hjá nýliðunum Fjögur prósent eru bara í fótbolta og langflestar vilja VAR og gervigras Svona var fundurinn fyrir Bestu deild kvenna Besta-spáin 2025: Sama húsnæði, sama starfsemi Besta-spáin 2025: Sóknarhugur á Samsung Leikmenn sem gætu blómstrað á nýjum stað Bjarki gerði allt brjálað á Skaganum með því að kyssa KR-merkið Sorg og óvissa en ljós við enda ganganna Elín Metta má spila með Val Fyndnar hárgreiðslur lykillinn að betri mætingu Besta-spáin 2025: Loftið verður að haldast í blöðrunni Besta spáin 2025: Krókur á móti bragði „Þið eruð ekki nógu duglegar að tuða í dómurunum“ Besta-spáin 2025: Þurfa aftur fimm réttar og jóker Besta-spáin 2025: Stoppa stutt við eftir langa eyðimerkurgöngu Aron Elís með slitið krossband Aron í tveggja leikja bann Stúkan segir ekki rautt og framkvæmdastjórinn æfur: „Má leggja hana niður“ Stórir draumar í Laugardalnum: „Allir vilja að Þróttur fari sem hæst“ „Vælum og öskrum þó við meiðum okkur ekki neitt“ Sjáðu markið umdeilda í Garðabæ: „Ekki var hann hræddur við Örvar?“ „Bæði svekktur en líka stoltur“ „Verðum bara að vona það besta en undirbúa okkur fyrir það versta“ „Ég tek þetta bara á mig“ Sjá meira