Hinn 47 ára gamli Howe hafði fundið fyrir óþægindum í nokkra daga, en er með meðvitund og undir eftirliti sérfræðinga. Frekari upplýsingar um ástand hans liggja ekki fyrir en félagið mun uppfæra stöðuna á næstu dögum.
Aðstoðarþjálfararnir Jason Tindall og Graeme Jones munu stýra liðinu í hans fjarveru, framundan er leikurinn gegn Manchester United klukkan hálf fjögur á morgun, leikur gegn Crystal Palace á miðvikudag og Aston Villa næsta laugardag.
Newcastle situr í sjöunda sæti deildarinnar eins og er, í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti. Howe hefur verið þjálfari Newcastle síðan 2021 þegar hann tók við af Steve Bruce.