Skoðun

Mótmælum rofi á rammaáætlun!

Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar
Alþingi hefur nú til umfjöllunar tillögu meirihluta atvinnuveganefndar sem gerir ráð fyrir að færa virkjanahugmyndir við Skrokköldu á Sprengisandi, Hagavatn sunnan Langjökuls og í neðrihluta Þjórsár í orkunýtingarflokk rammaáætlunar. Þetta gefur orkufyrirtækjum skotleyfi á umrædd landsvæði án þess að nokkur þessara virkjana hafi hlotið fullnægjandi málsmeðferð sem lög mæla fyrir um. Ég spyr hvort fólk sætti sig við þetta og telji vinnubrögð sem þessi líkleg til sátta um orkunýtingu í landinu? Hvað segir umhverfisráðherra? Hvað segir forstjóri Landsvirkjunar? Hvað segir formaður Samtaka ferðaþjónustunnar? Hvað segir þú lesandi góður?

Lög um rammaáætlun kveða á um skýrt verklag. Umhverfisráðherra ber að leggja tillögur um flokkun virkjanahugmynda fyrir Alþingi. Í þessu máli hefur það ekki verið gert nema um eina hugmynd í neðrihluta Þjórsár, Hvammsvirkjun. Faghópar eiga að meta verðmæti svæða og áhrif virkjana á þau, gefa þeim stig og raða eftir verðmætum á þessum forsendum. Vorið 2013 tók ný verkefnisstjórn rammaáætlunar til starfa og vinnur nú að 3. áfanga áætlunarinnar. Í endurskoðun hennar á flokkun virkjanahugmynda í neðrihluta Þjórsár var engri stigagjöf beitt og enginn samanburður fékkst við aðrar virkjanahugmyndir. Faghópar í núverandi áfanga hafa ekki enn metið Skrokköldu- og Hagavatnsvirkjun en vinnu þeirra ber lögum samkvæmt að leggja til grundvallar mati verkefnisstjórnar á hverjum tíma. Alþingi getur tæpast fært þessar virkjanahugmyndir til án þess að þessi vinna hafi farið fram. Áhöld eru því um hvort tillagan standist hreinlega lög.

Burtséð frá lagalegum atriðum er ljóst að verði tillaga meirihluta atvinnuveganefndar að veruleika felur það í sér alvarlegt rof á tilraun til sátta um orkunýtingu í landinu. Rammaáætlunarferlinu yrði hreinlega kastað fyrir róða. Á nýafstöðnum aðalfundi Landverndar var skorað á alþingismenn að fresta ákvörðun um þessar fimm virkjanahugmyndir og fella þær inn í niðurstöður 3. áfanga rammaáætlunar sem kunngerðar verða eftir einungis eitt ár. Þar með fengist raunverulegur samanburður virkjanahugmynda til grundvallar flokkun þeirra í verndar- og orkunýtingarflokk.

Nú dugar ekkert minna en að slá í potta og pönnur á Austurvelli til verndar hálendinu og rammaáætlunarferlinu. Skilaboð okkar eru skýr: Vér mótmælum öll!




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×