Alexander Petersson var besti leikmaður íslenska handboltalandsliðsins í tapleiknum á móti Hvíta Rússlandi í öðrum leik liðsins á Evrópumótinu í Póllandi.
Hbstatz.is tekur saman tölfræði íslenska liðsins á Evrópumótinu og Vísir hefur fengið leyfi til að sækja upplýsingar í tölfræðikerfið en það kemur með nýja vídd í handboltatölfræði á Íslandi.
Tölfræðikerfið hjá Hbstatz.is tekur meðal annars saman einkunn leikmanna út frá tölfræði þeirra í viðkomandi leik og þá er bæði tekin saman frammistaðan í vörn og sókn.
Alexander Petersson var hæstur í leiknum á móti Hvíta Rússlandi með 7,7 í tölfræðieinkunn en hann var aðeins hærri en Arnór Atlason sem fékk 7,6 í einkunn. Arnór Þór Gunnarsson og Aron Pálmarsson voru síðan jafnir í þriðja sætinu með 6,9, rétt á undan fyrirliðanum Guðjóni Val Sigurðssyni sem fékk einkunnina 6,8.
Sjá einnig:Aron Pálmarsson fékk langhæstu einkunnina hjá Hbstatz
Arnór Atlason fékk langhæstu einkunnina fyrir sóknarleikinn eða 9,1 en hann klikkaði ekki á skoti, tapaði ekki bolta og átti fullt af stoðsendingum. Alexander Petersson og Aron Pálmarsson voru jafnir í öðru sæti með 7,9 í einkunn fyrir sóknarleikinn.
Ásgeir Örn Hallgrímsson (7,0) fékk hæstu einkunnina fyrir varnarleikinn en annar var hornamaðurinn Arnór Þór Gunnarsson með 6,9. Þriðji voru síðan þeir Vignir Svavarsson og Bjarki Már Gunnarsson með 6,3 í einkunn fyrir varnarleikinn.
Barys Pukhouski var hæstur í liði Hvít Rússa með einkunn upp á 9,8 en íslenska liðið réði ekkert við hann í þessum leik. Siarhei Rutenka var síðan annar með einkunn upp á 7,6.
Einkunnagjöf íslensku leikmannanna í 38-39 tapi á móti Hvíta Rússlandi:
Alexander Petersson 7.7
Arnór Atlason 7.6
Arnór Þór Gunnarsson 6.9
Aron Pálmarsson 6.9
Guðjón Valur Sigurðsson 6.8
Róbert Gunnarsson 6.5
Vignir Svavarsson 6.5
Snorri Steinn Guðjónsson 6.2
Ásgeir Örn Hallgrímsson 6.2
Björgvin Páll Gústavsson 5.6
Bjarki Már Gunnarsson 5.3
Guðmundur Hólmar Helgason 5.2
Stefán Rafn Sigurmannsson 5.0
Ólafur Guðmundsson 5.0
Rúnar Kárason 4.7
Aron Rafn Eðvarðsson 4.6
Besta framistaðan í sókn
Arnór Atlason 9.1
Alexander Petersson 7.9
Aron Pálmarsson 7.9
Arnór Þór Gunnarsson 7.3
Guðjón Valur Sigurðsson 7.3
Róbert Gunnarsson 7.3
Besta frammistaðan í vörn
Ásgeir Örn Hallgrímsson 7.0
Arnór Þór Gunnarsson 6.9
Vignir Svavarsson 6.3
Bjarki Már Gunnarsson 6.3
Alexander Petersson 6.2
Handbolti
Alexander rétt á undan Arnóri Atla í einkunnagjöf Hbstatz
Tengdar fréttir
Handvarpið: Með bakið upp við hinn fræga vegg
Strákarnir okkar eru í vondum málum eftir skelfilegt tap gegn Hvíta-Rússlandi í dag, en farið er yfir leikinn og mögulega Íslands í nýjasta þætti Handvarpsins.
Mögnuð stund: Strákarnir okkar og íslensku stuðningsmennirnir tóku „Ég er kominn heim“
Stuðningsmenn íslenska handboltalandsliðsins eru farnir að vekja athygli í Póllandi en í gærkvöldi tók hópurinn lagið Ég er kominn heim með Óðni Valdimarssyni til heiðurs strákunum okkar.
Alexander stoppaði Norðmenn níu sinnum
Alexander Petersson átti flottan leik í vörn íslenska liðsins í sigrinum á Noregi í fyrsta leik liðsins á EM í Póllandi.
Aron Pálmarsson fékk langhæstu einkunnina hjá Hbstatz
Aron Pálmarsson var besti leikmaður íslenska handboltalandsliðsins í sigrinum á Noregi í fyrsta leik liðsins á Evrópumótinu í Póllandi.
Handvarpið: "Það þarf að tryggja úlnliðinn á Aroni Pálmarssyni“
Sigri á Norðmönnum var fagnað í þriðja þætti Handvarpsins, hlaðvarpi Vísis um stórmótin í handbolta.