Skoðun

Strengjabrúða Landsvirkjunar?

Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar
Umhverfisráðuneytið fer að kröfum Landsvirkjunar í nýjum drögum að breytingum á starfsreglum verkefnisstjórnar rammaáætlunar.

Verkefnisstjórnin hefur ráðgefandi hlutverk gagnvart stjórnvöldum um hvar má virkja og hvar ekki. Verði drögin að veruleika, hefur Landsvirkjun í raun mótað leikreglur verkefnisstjórnar í úrvinnslu mála sem varða beina fjárhagslega hagsmuni fyrirtækisins; fleiri virkjanir. Spilling af þessu tagi má ekki viðgangast.

Faglegt sjálfstæði afnumið

Breytingarnar varða m.a. svæði sem nú þegar eru í verndarflokki rammaáætlunar og Alþingi hefur ákveðið að friðlýsa. Nóg yrði fyrir orkufyrirtæki að breyta virkjanahugmynd á svæði í verndarflokki lítilsháttar og verkefnisstjórnin yrði að endurmeta hana. Þetta reyndi Landsvirkjun einmitt með Norðlingaölduveitu fyrir skemmstu, en verkefnisstjórnin hafnaði endurmati eftir faglega umfjöllun. Faglegt sjálfstæði verkefnisstjórnar yrði afnumið með breytingunum og opnað á endurupptöku virkjanahugmynda á svæðum sem búið er að ákveða að friða gegn orkunýtingu.

Farið að kröfum Landsvirkjunar

Í krafti upplýsingalaga um um­hverfis­mál fékk Landvernd aðgang að öllum gögnum þessa máls. Eini aðilinn sem óskaði eftir breytingum á starfsreglunum var Landsvirkjun sem lagði fram skriflegar kröfur sínar á fundi í umhverfisráðuneytinu í ágúst. Eftir bréfaskipti Landsvirkjunar og ráðuneytisins í lok árs sendi ráðuneytið verkefnisstjórn­inni og atvinnuvegaráðuneytinu fyrstu drög breyttra starfsreglna til umsagnar. Var þar komið til móts við kröfur Landsvirkjunar að nokkru. Eftir athugasemdir frá atvinnuvegaráðuneytinu, sem leitaði álits Orkustofnunar og Landsvirkjunar, breyttust drögin og eru nú í grundvallaratriðum í samræmi við upphaflegar kröfur Landsvirkjunar. Lokadrög voru ekki kynnt verkefnisstjórn áður en þau fóru til umsagnar almennings. Umhverfisráðherra sagði í útvarpsfréttum á sunnudag að hvorki hún né ráðuneytið hefðu haft „sérstakt samband“ við Landsvirkjun. Af gögnum sést þó að samskipti voru í formi fundar og síðan bréfaskipta á báða bóga. Eftir stendur að farið er að kröfum Landsvirkjunar.

Málsmeðferð stenst ekki lög

Málsmeðferðin stenst tæpast siðferðileg og sanngjörn viðmið í lýðræðisþjóðfélagi. Hún er heldur ekki í samræmi við lögin um rammaáætlun, en samkvæmt þeim ber að setja starfsreglurnar að fengnum tillögum verkefnisstjórnarinnar sjálfrar, ekki að tillögum Landsvirkjunar eða Orkustofnunar.

Friðurinn er í höndum ráðherra

Umhverfisráðherra hefur lýst því yfir að hún vilji standa vörð um rammaáætlun. Kæra Sigrún, hér er tækifærið: Stattu við stóru orðin og staðfestu ekki þessar reglur frá Landsvirkjun, ellegar brýtur þú málsmeðferð laganna, jarðsetur rammaáætlun, þinn eigin trú­verðug­leika og skapar ófrið um störf verkefnisstjórnar. Friðurinn er í þínum höndum.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×