
Sjokkið í skírnarveislunni
Einn aldurshóp vantaði í fjörið. Það var unga, frjálsa og áhyggjulausa fólkið á aldrinum 15-25 ára. Þegar ég gekk á milli gesta leit ég yfir salinn í leit að unga fólkinu. Að lokum fann ég það í einu horninu. Ég hugsaði með mér að þetta hlyti að vera stuðboltaborðið.
Ég hafði kolrangt fyrir mér. Við borðið ríkti algjör þögn. Það var eins og þau væru ekki þarna, þau sögðu ekkert og tóku ekki þátt í gleðinni. Ungmennin við borðið lutu öll höfði og voru upptekin í símum sínum.
Ég komst að því síðar um kvöldið þegar ég fór inn á Facebook að þau höfðu ekki setið aðgerðarlaus í veislunni. Þvert á móti höfðu þau „spjallað“ ákaft saman á samfélagsmiðlinum með skrifum og „lækum“ hvert hjá öðru.
Hættu nú alveg!
Ég sá líka fleira á Facebook þetta kvöld sem stakk í augu. Þar var mynd af skírnartertunni með nafni barnsins okkar. Hún hafði verið sett inn á samfélagsmiðilinn áður en við höfðum látið þá vini og vandamenn sem ekki voru í veislunni vita af nafni barnsins. Ég hef alltaf talið það hlutverk foreldranna að flytja þær fregnir og ákveða hvenær nafnið skyldi opinberað.
Þarna var líka Snapchat-myndskeið af okkur hjónum, tekið þegar við vorum að tala við aðra veislugesti án vitundar okkar eða samþykkis um birtingu á netinu.
Það virðist sem fólk sé orðið berskjaldað fyrir myndatökum og hafi varla rétt á því að vita hvenær verið er að taka samtöl upp – hvenær maður heldur að viðmælandinn einn sé að hlusta þegar í reynd 200 manns eru að því. Við erum orðin almannaeign, okkur má mynda hvenær og hvar sem er og segja öðrum frá.
Sjokkið í skírnarveislunni okkar ýtti við mér. Það vakti mig til vitundar um það tangarhald sem samfélagsmiðlar hafa náð á okkur og þeim neikvæðu áhrifum sem þeir geta valdið ef þeir eru ekki notaðir á meðvitaðan hátt.
Ekki svo að skilja að ég sé á móti tækninni en mér fannst að einhverju þyrfti að breyta. Ég sökkti mér niður í rannsóknir um áhrif netnotkunar, samfélagsmiðla og stafrænna tækja á heilsu og líðan fólks.
Ekki eyða lífinu í símanum!
Í þessu grúski mínu komst ég að því að um 61% einstaklinga er háð netnotkun. Fólk sem notar Netið of mikið, hvort heldur er í síma eða tölvu, er 2,5 sinnum líklegra til að glíma við þunglyndi en aðrir.
Síðan er það stressið. Streita er það sem helst ógnar heilsufari manna á 21. öldinni enda undanfari margra sjúkdóma. Meðalmaðurinn er alltaf að múltítaska með því að flakka stöðugt á milli vefsíðna og skoða samfélagsmiðlana. Fyrir vikið verður einbeitingin lítil sem engin og framleiðni minnkar, sem er vissulega bagalegt í hugum atvinnurekenda. Það tekur ekki „enga stund“ að kíkja aðeins á samfélagsmiðlana – þannig týnist tíminn?…
Málið er í hnotskurn þetta: Tæknin átti að þjóna okkur og auðvelda vinnuna en hefur gert okkur að þrælum. Við verðum að taka stjórnina á ný og verða meðvitaðri um þau neikvæðu áhrif sem notkun stafrænna tækja og samfélagsmiðla hafa á heilsu okkar og félagslega hæfni.
Prófaðu að setja símann á hilluna í einn klukkutíma á dag eftir að börnin eru komin heim. Vittu til: Þú munt eignast ómetanleg augnablik og samverustundir með börnunum í stað þess að eyða öllum þínum tíma með augu og athygli á skjánum á meðan lífið þýtur óvart fram hjá þér.
Skoðun

Hlustum á okkar landsliðskonur - sýnum Ísrael rauða spjaldið
Hrönn G. Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar

Hópnauðganir/svartheimar!
Davíð Bergmann skrifar

Valdið og samvinnuhugsjónin
Kjartan Helgi Ólafsson skrifar

NPA breytti lífinu mínu
Sveinbjörn Eggertsson skrifar

Hefur þú tilkynnt um ofbeldi gegn barni?
Alfa Jóhannsdóttir skrifar

Gildi kærleika og mannúðar
Toshiki Toma skrifar

Hvernig tryggjum við samkeppnishæfni þjóðar?
Jón Skafti Gestsson skrifar

Í minningu Frans páfa - sem tók sér nafn verndardýrlings dýra og náttúru
Árni Stefán Árnason skrifar

Flottu kjötauglýsingarnar í blöðunum...
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Grafarvogsgremjan
Þorlákur Axel Jónsson skrifar

Er ég að svindla? – Um sambýli manns og gervigreindar í sköpun og þekkingu
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Fjármögnuðu stríðsvél Rússlands
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hugleiðingar á páskum
Ámundi Loftsson skrifar

Gremjan í Grafarvogi
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Samlokan á borðinu: Hugleiðingar á föstudeginn langaum sjónvarpsþættina Adolescence
Skúli Ólafsson skrifar

Móttaka skemmtiferðaskipa - hlustað á íbúa
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar

Námsfærni nemenda í íslenskum skólum: Eigum við að lækka rána?
Sigríður Ólafsdóttir skrifar

Þegar mannshjörtun mætast
Jóna Hrönn Bolladóttir,Bjarni Karlsson skrifar

Horft til einkunna og annarra þátta við innritun í framhaldsskóla
Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar

Kristján á Sprengisandi lendir í ágjöf
Björn Ólafsson skrifar

Unglingar eiga skilið heildstætt mat frá framhaldsskólum
Sigurður Kári Harðarson skrifar

Stöðvum glæpagengi á Íslandi
Hjalti Vigfússon skrifar

Jafnlaunavottun - „Hverjir græða á jafnlaunavottun“
Gunnar Ármannsson skrifar

Gervigreind í skólum: Tækifæri sem fáir eru að ræða?
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Hvernig húsnæðismarkað vill Viðskiptaráð?
Finnbjörn A. Hermannsson skrifar

Enginn matur og næring án sérfræðiþekkingar
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

Öll endurhæfing er í eðli sínu starfsendurhæfing
Sveindís Anna Jóhannsdóttir skrifar

„Bíddu, varst þú ekki að biðja um þessa greiðslu?“
Heiðrún Jónsdóttir skrifar

Rétta leiðin til endurreisnar menntakerfisins?
Birgir Finnsson skrifar