

Ný stjórnarskrá efnahagslífsins
Vafningar og snúningar
Um áratugaskeið höfum við séð vel tengda viðskiptamenn auðgast vegna þess að stjórnmálamenn hafa tryggt þeim aðgang að takmarkaðri aðstöðu eða ríkiseignum. Í skjóli þessa hefur vaxið og dafnað hér á landi sérstök tegund kapítalista – þeirra sem nærast á annarra manna fé og leggja meiri áherslu á taumlausan arð í eigin vasa en raunverulega sköpun verðmæta sem nýtast samfélaginu öllu. Það er þessi tegund sem flykktist í skattaskjól til að forðast að leggja af mörkum eftir efnum. Það er líka í þessum anda sem bankar bjuggu til vafninga og snúninga til að skapa sér og vildarvinum sínum arð, en sköpuðu engin verðmæti með því. Þvert á móti: Vafningarnir sugu verðmæti úr hinu verðmætaskapandi efnahagslífi.
Bankar fyrir heimili
Á síðustu misserum hafa Borgunarhneykslið og óheftar arðgreiðslur tryggingafélaga á kostnað almennings sýnt að ekkert hefur breyst í grundvallaratriðum. Við verðum að laga bankakerfið að þörfum almennings, heimilanna og verðmætaskapandi fyrirtækja. Setja aukna framleiðni, en ekki bólugróða, í forgang atvinnu- og efnahagsmálastefnunnar.
Á níunda áratug síðustu aldar létu jafnaðarmenn í Svíþjóð og Danmörku sig dreyma um áhrif almennings á efnahagslíf í gegnum sjóði launamanna sem hefðu stjórnunaráhrif í efnahagslífinu. Þetta var á þeim tíma talið óraunhæft með öllu. Uppbygging lífeyrissjóðanna á Íslandi hefur hins vegar gert það að verkum að við erum óvart komin í þá stöðu að hér eru orðnar forsendur fyrir öflugu félagslegu eignarhaldi.
Nýtum völd almennings
Í gegnum lífeyrissjóðina á íslenskur almenningur miklar eignir í atvinnulífinu. Við eigum að þróa það eignarhald og knýja fram ábyrga hegðun í atvinnulífinu og tryggja framlag fyrirtækja til samfélagslegrar ábyrgðar. Lífeyrissjóðir þurfa að setja sér viðmið um stjórnarhætti, eðlilegan launamun og jöfn laun óháð kyni í þeim fyrirtækjum sem sjóðirnir fjárfesta í. Jafnframt eiga lífeyrissjóðirnir, sem glíma við kostnað af sífellt vaxandi örorkubyrði, að setja skilyrði um að fyrirtæki sem sjóðirnir fjárfesti í bjóði fólki með skerta starfsgetu störf og styðji við starfsendurhæfingu af öllum toga. Og við getum ekki sætt okkur við að virkir fjárfestar dragi lífeyrissjóðina með sér í fjárfestingar og nýti fé almennings til að skammta sjálfum sér auð og völd.
Sameiginlegar auðlindir
Það þarf líka að tryggja almenningi í landinu arð af sameiginlegum auðlindum og arð af ríkiseignum og gefa ófrávíkjanleg fyrirmæli um samkeppni um sölu þeirra. Við þurfum líka að innleiða fyrningarleið í sjávarútvegi, sem allir hljóta nú að sjá að er besta leiðin til að tryggja nýliðun, samkeppni og fullnægjandi arð af auðlindinni til almennings.
Other people‘s money
Við þurfum að nýta það tækifæri sem nú er að opnast með umsvifum ríkisvaldsins á fjármálamarkaði og brjóta bankana upp og raða upp á nýtt. Þess vegna hefur Samfylkingin boðið hinum heimsfræga hagfræðingi, John Kay, til landsins 24. apríl nk. Kay hefur nýlega skrifað merka bók sem ber nafnið „Other people‘s money“ og fjallar um það öngstræti sem fjármálakerfi Vesturlanda er komið í. Gamla tuggan um aðskilnað fjárfestingarbanka og viðskiptabanka nær ekki utan um það flækjustig sem nú er við að eiga. Það þarf róttækari breytingar. Eignastýring á ekki heima í bönkum, enda eiga bankar ekkert með að fjárfesta fyrir annarra manna fé. Það ætti banna beinar fjárfestingar banka í fyrirtækjum. Svo þarf að verja sérstaklega innstæður almennings og skilja frá annarri starfsemi banka.
Það er fullt ógert. Nú er veður til að skapa.
Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Skoðun

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar

Af hverju er Framsóknarfólk hamingjusamast?
Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar

Norska leiðin hefur gefist vel – í Póllandi
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Opið hús fyrir útvalda
Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar

Af hverju hræðist fólk kynjafræði?
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hlustum á okkar landsliðskonur - sýnum Ísrael rauða spjaldið
Hrönn G. Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar

Hópnauðganir/svartheimar!
Davíð Bergmann skrifar

Valdið og samvinnuhugsjónin
Kjartan Helgi Ólafsson skrifar

NPA breytti lífinu mínu
Sveinbjörn Eggertsson skrifar

Hefur þú tilkynnt um ofbeldi gegn barni?
Alfa Jóhannsdóttir skrifar

Gildi kærleika og mannúðar
Toshiki Toma skrifar

Hvernig tryggjum við samkeppnishæfni þjóðar?
Jón Skafti Gestsson skrifar

Í minningu Frans páfa - sem tók sér nafn verndardýrlings dýra og náttúru
Árni Stefán Árnason skrifar

Flottu kjötauglýsingarnar í blöðunum...
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Grafarvogsgremjan
Þorlákur Axel Jónsson skrifar

Er ég að svindla? – Um sambýli manns og gervigreindar í sköpun og þekkingu
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Fjármögnuðu stríðsvél Rússlands
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hugleiðingar á páskum
Ámundi Loftsson skrifar

Gremjan í Grafarvogi
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Samlokan á borðinu: Hugleiðingar á föstudeginn langaum sjónvarpsþættina Adolescence
Skúli Ólafsson skrifar

Móttaka skemmtiferðaskipa - hlustað á íbúa
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar

Námsfærni nemenda í íslenskum skólum: Eigum við að lækka rána?
Sigríður Ólafsdóttir skrifar

Þegar mannshjörtun mætast
Jóna Hrönn Bolladóttir,Bjarni Karlsson skrifar

Horft til einkunna og annarra þátta við innritun í framhaldsskóla
Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar