Bieber samdi lagið ásamt Julia Michaels, Justin Tranter, Sonny Moore, betur þekktur sem Skrillex, og Michael Tucker.
Um er að ræða bjarta raddstefið sem heyrist í upphafi lagsins Sorry og er gegnum gangandi í viðlaginu.
Raddstefið er nánast alveg eins og raddstefið úr lagi Casey Dienel, Ring The Bell. Stefið í Sorry virðist þó vera ögn frábrugðið vegna lokanótunnar.
Dienel er hörð á því að þeir sem komu að því að gera lagið Sorry hafi stolið þessu frá sér. Hún segist hafa leitað til Biebers til að ná fram sátt en hann hafi hunsað það boð.