

Muhammad Ali látinn – Boxhanska til Alþingis
Það var þó ekki sett bann við fréttum af því að 18 ára blökkumaður frá Bandaríkjunum af nafni Cassius Clay vann Ólympíugull í léttþungavigt Róm 1960. Við heimkomu var hann kallaður ólympíski niggarinn og fékk ekki inngöngu í betri veitingahús. Það var heldur ekki bannað að heyra fréttir af því þegar hann óvænt vann heimsmeistaratitil árið 1964 gegn Sonny Liston margreyndum, eldri og þyngri kappa.
Þegar fjölskyldan fór til Bandaríkjanna snemma árs 1966 til sérnáms míns var ýmislegt nýtt fyrir okkur, svo sem sjónvarp og Víetnamstríð í algleymingi. Aðalsamskipti ungs læknis við borgara nýja landsins voru við miðaldra velstæða lækna í kaffi- og matartímum. Fréttir af stríðinu voru áberandi og tölur frá Westmoreland hershöfðingja um hversu margir Vietcong-liðar hefðu fallið á síðasta sólarhring þ.e „body count“. Ég minnist ekki athugasemda kolleganna við stríðinu en ungir Bandaríkjamenn voru farnir að ókyrrast og mótmæli farin af stað. Allir ungir menn voru skyldaðir til herþjónustu ef þeir stóðust læknisskoðun. Örsjaldan var hægt að fá undanþágu vegna samviskumótmæla (conscience objector) sem var vegna sérstakra trúarskoðana. Neitun leiddi til 5 ára fangelsisvistar. Fjöldi ungra manna flutti til Kanada og voru taldir föðurlandssvikarar. Þeir áttu ekki afturkvæmt til Bandaríkjanna fyrr en með sérstakri náðun Bandaríkjaforseta mörgum árum eftir að Víetnamstríðinu lauk 1973.
Stóð fastur á sínu
Cassius Clay var orðinn þekktur sem afburðasnjall hnefaleikamaður. Hann hafði breytt nafni sínu sem hann taldi þrælanafn í Muhammad Ali og gerst múhameðstrúar og gengið í ákveðinn söfnuð. Hann var kvaddur í herinn en samviskuforsendum hans var hafnað. Hann neitaði samt og kvaðst ekkert eiga sökótt við Vietcong og fyrr mætti setja sig fyrir aftökusveit en hann færi að drepa aðra. Hann var dæmdur til fangelsisvistar en fullnustu frestað vegna áfrýjunar. Hann var almennt fordæmdur af yfirvöldum og stórblöðum og talinn úrhrak og úrþvætti, sviptur heimsmeistaratitli og atvinnuleyfi og tapaði milljónum dollara í áætluðum tekjum en stóð fast á sínu. Hæstiréttur Bandaríkjanna samþykkti endanlega samviskuforsendur hans árið 1971 og hann fékk aftur titil sinn og keppnisleyfi og hóf aftur keppni eftir tæplega fjögurra ára hlé og vann glæsta sigra.
Hann varð ekki síður þekktur fyrir baráttu sína fyrir jafnrétti blökkumanna sem og allra sem töldust undirokaðir og mannúðarmál almennt. Hann varð einhver dáðasti íþróttamaður síðustu aldar, ferðaðist víða um heiminn með friðarboðskap og æðstu fyrirmenn kepptust um að fá hitta hann. Muhammad Ali var þó mjög mótsagnakennd persóna, gat verið groddalegur í yfirlýsingum en oftast mjög snjall í orðræðum og heillaði alla sem kynntust honum.
Honum var fyrst boðið í Hvíta húsið árið 1974 til Gerald R. Ford forseta og varaði hann við að nú mundi hann sækjast eftir vinnu hans! Það snart alla þegar hann farinn heilsu kveikti á Ólympíueldinum í Atlanta 1996. George W. Bush forseti veitti honum æðsta heiðursmerki Bandaríkjanna Medal of Freedom árið 2005. Barack Obama þáði boxhanska frá honum sem hann varðveitir í skrifstofu sinni „Oval office“.
Muhammad Ali hefði hins vegar ekki getað komið til Íslands og sýnt boxhanska sína vegna laga um „óviðfelldan leik“ sem alheimur dáði.
Ég mun minnast Muhammad Ali fyrir einstakt hugrekki og staðfestu í aðstæðum sem flestum er erfitt að skilja löngu síðar. Ég mun þó líka minnast „boxhanska“ laga forsjárhyggjumanna við Austurvöll. Því miður má enn finna samlíkingar með þeim.
Væri ekki rétt að gefa Alþingi boxhanska til íhugunar?
Höfundur dvaldi í Bandaríkjunum frá 1966-1973. Hann var læknir íslenska liðsins á Ólympíuleikunum 1996.
Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Skoðun

Kristján á Sprengisandi lendir í ágjöf
Björn Ólafsson skrifar

Unglingar eiga skilið heildstætt mat frá framhaldsskólum
Sigurður Kári Harðarson skrifar

Stöðvum glæpagengi á Íslandi
Hjalti Vigfússon skrifar

Jafnlaunavottun - „Hverjir græða á jafnlaunavottun“
Gunnar Ármannsson skrifar

Gervigreind í skólum: Tækifæri sem fáir eru að ræða?
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Enginn matur og næring án sérfræðiþekkingar
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

Öll endurhæfing er í eðli sínu starfsendurhæfing
Sveindís Anna Jóhannsdóttir skrifar

„Bíddu, varst þú ekki að biðja um þessa greiðslu?“
Heiðrún Jónsdóttir skrifar

Rétta leiðin til endurreisnar menntakerfisins?
Birgir Finnsson skrifar

Tvær dætur á Gaza - páskahugvekja
Viðar Hreinsson skrifar

Ef það líkist þjóðarmorði – þá er það þjóðarmorð!
Ólafur Ingólfsson skrifar

Vinnustaðir fatlaðs fólks
Atli Már Haraldsson skrifar

Þjónustustefna sveitarfélaga: Formsatriði eða mikilvægt stjórntæki?
Jón Hrói Finnsson skrifar

Blóð, sviti og tár
Jökull Jörgensen skrifar

Ertu knúin/n fram af verðugleika eða óverðugleika?
Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar

Er hægt að stjórna bæjarfélagi með óskhyggju?
Sigurþóra Bergsdóttir skrifar

Styrkleikar barna geta legið í öðru en að fá hæstu einkunnir
Anna Maria Jónsdóttir skrifar

Listin við að fara sér hægt
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Kosningar í stjórn Visku: Þitt atkvæði skiptir máli!
Eydís Inga Valsdóttir skrifar

Ábyrgð yfirvalda á innra mati á skólastarfi
Anna Greta Ólafsdóttir skrifar

Bjánarnir úti á landi
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar

Hvað kostar EES samningurinn þjóðina?
Sigurbjörn Svavarsson skrifar

En hvað með loftslagið?
Emma Soffía Elkjær Emilsdóttir,Eiríkur Hjálmarsson skrifar

Ráðherra og valdníðsla í hans nafni
Örn Pálmason skrifar

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 1/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Er fótbolti að verða vélmennafótbolti?
Andri Hrafn Sigurðsson skrifar

Geðheilbrigðisþjónusta og fiskur – er einhver tenging?
Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar

Fjárfestum í hjúkrun
Ólafur Guðbjörn Skúlason skrifar

Tölum um endurhæfingu!
Laufey Elísabet Gissurardóttir,Steinunn Bergmann,Þóra Leósdóttir skrifar