Hörðustu aðdáendur Game of Thrones þáttanna vöktu eftir lokaþættinum í sjöttu seríu sem sýndur var á Stöð 2 klukkan eitt í nótt. Þar gerðist margt og mikið og er óhætt að fullyrða að búið sé að riðla Krúnuleikunum til. En ekki orð um það meir.
Glöggir áhorfendur hafa eflaust í einu atriðanna haldið eins og þættirnir væru að hverfa yfir í spaugilegu hliðina eða þegar danski leikarinn Frank Hvam birtist óvænt á skjánum.
Frank er eins og allir vita, annar helmingur danska gríntvíeykisins Klovn og í lokaþætti Game of Thrones bregður honum fyrir í afar spaugilegu atriði sem bókasafnsverði í bænum Citadel þangað sem Sam Tarly og fjölskylda hans hafa verið að ferðast til alla seríuna. Ekki er vitað hvort hann komi til með að birtast í fleiri þáttum í komandi seríum en þetta var í fyrsta skiptið sem aðdáendur Game of Thrones fengu að líta bæinn augum.
Lokaþáttur sjöttu seríua Game of Thrones verður sýndur á Stöð 2 í kvöld.
Trúður í Game of Thrones

Tengdar fréttir

Átta leikarar sem sjást bæði í Harry Potter og Game of Thrones
Við köllum þig skrambi góðan ef þú hefur náð að þekkja leikarana í báðum ævintýraheimum.

Game of Thrones: Komið að endalokum - Í bili
Aðeins einn þáttur er eftir í sjöttu þáttaröð Game of Thrones.

Game of Thrones: Bak við tjöld bardaga bastarðanna
Hvernig fóru þeir eiginlega að þessu?