Ragnar: Ekkert til í sögunum um Liverpool Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. júní 2016 09:21 Ragnar Sigurðsson. Vísir/Vilhelm
Ragnar Sigurðsson segir að síðustu dagar hafi verið viðburðarríkir en hann ræddi við fjölmiðla fyrir æfingu íslenska liðsins í Annecy í morgun. Eftir frábæra frammistöðu hans gegn Englandi í 16-liða úrslitum EM í Frakklandi segir hann að hann hafi orðið var við áhuga liða á sér en Ragnar leikur sem stendur með Krasnodar í Rússlandi. „Ég talaði við umboðsmanninn í gær og hann sagði að það væri ekkert fast í hendi. Ég ætti bara að einbeita mér að því að standa mig í næsta leik,“ sagði Ragnar í morgun. „Ég vil að sjálfsögðu spila í stærri deild.“ Ragnar segir að það hafi verið draumur hjá honum að spila með Liverpool en hann reiknar ekki með því að það verði að veruleika. „Ég held að það sé ekkert til í þeim sögusögnum,“ sagði hann og bætir við að allar þessar sögusagnir og sú mikla athygli sem hann hefur fengið hafi ekki truflandi áhrif á hann. „Það er bara gott og þetta virkar á mann eins og aukahvatning fyrir mig. Það er gaman að fá viðurkenningu fyrir það sem maður er að gera. Þá vill maður leggja ennþá meira á sig.“ Hann játar því að líklega hafi hann aldrei spilað betur á ferlinum en í leikjum Íslands á EM. „Getur maður ekki sagt það? Þetta er svo stórt svið og það spilar líka inn í hvað manni finnst um eigin frammistöðu. En ætli maður getur bara ekki sagt það.“
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Enski boltinn Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Úlfarnir unnu United aftur Enski boltinn Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum Sport Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Enski boltinn Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Formúla 1 ÍA og Vestri mætast inni Íslenski boltinn Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Enski boltinn Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Enski boltinn Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt Fótbolti Fleiri fréttir Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Valverde bjargaði vondri viku Evrópumeistararnir fóru hamförum Daníel Leó með mikilvægt sigurmark á meðan Kolbeinn skoraði í tapi „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ ÍA og Vestri mætast inni Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Hákon nær Meistaradeildinni en Mikael áfram í fallsæti Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt María lagði upp og fyrsta stigið komið í hús Losað um hlekki Jóns Dags sem lagði upp eftir tuttugu sekúndur Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Ancelotti segir engin illindi milli sín og forsetans Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg McTominay hetja Napoli Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Stórsigur Villa galopnar baráttuna um Meistaradeildarsæti City nálgast sæti í Meistaradeild Evrópu Tveir fimmtán ára með þrjú fyrir KR | Adam Ægir skoraði strax fyrir Val Blésu til veislu eftir brostna drauma í Mílanó Cecilía að landa silfri og Fanney mætt í markið Sjáðu Ísak fara á kostum í Svíþjóð í dag Sjá meira