Hækkandi hitastig í heiminum gæti kostað alþjóðlega hagkerfið yfir tvær billjónir dollara fyrir árið 2030, með því að takmarka tíma sem hægt er að vinna á í fátækustu þjóðum heims, þetta er niðurstaða ransóknar Sameinuðu þjóðanna.
Samkvæmt SÞ munu allt að fjörutíu og þrjú lönd, sérstaklega lönd í Asíu, meðal annars Kína, Indónesía og Malasía, standa frammi fyrir lægri hagvexti vegna aukins hita. Talið er að landsframleiðsla í Kína gæti dregist saman um eitt prósent, og landsframleiðsla í Indónesíu um sex prósent fyrir árið 2030.
Bloomberg greinir frá því að gríðarlegur hiti í suðaustur Asíu leiði nú þegar til fimmtán til tuttugu prósent færri vinnustundum, og að sú tala gæti tvöfaldast fyrir árið 2050 vegna hlýnun jarðar.
Aukinn hiti mun hafa meiri áhrif í fátækari löndum, þar sem ríkari lönd hafa betri möguleika á að kæla rými til að bregðast við auknum hita á vinnustundum.
Árið 2030 er spáð því að tap á landsframleiðslu gæti numið allt að 450 milljörðum dollara í Kína og á Indlandi vegna hækkandi hitastigs. Möguleiki væri þó á að draga úr áhrifunum með því að færa vinnutímann til.

