Skoðun

Ritari staðlausra stafa

Hildur Sverrisdóttir skrifar
Ritari framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar, Óskar Steinn Ómarsson, gaf LÍN-frumvarpi menntamálaráðherra falleinkunn í grein sinni í blaðinu þann 22. ágúst. Fullyrti ritarinn að kennarar og hjúkrunarfræðingar myndu bera skarðan hlut frá borði yrði LÍN-frumvarpið að lögum. Vísaði hann sérstaklega til þess að greiðslubyrði lána þessara hópa myndi þyngjast vegna hækkunar vaxta á námslánum og afnáms tekjutengingar afborgana. Allt þetta fullyrti hann án þess að vísa til nokkurra heimilda eða gagna. Þetta er rangt. Stúdentaráð Háskóla Íslands (SHÍ) framkvæmdi greiningu á áhrifum frumvarpsins á greiðslubyrði námsmanna í hinum ýmsu deildum háskólans. Niðurstöður þeirrar greiningar eru þvert á fullyrðingar ritarans.

Samkvæmt greiningu SHÍ var m.a. miðað við að allir núverandi lántakendur myndu taka námslán fyrir 180 einingum. Þá var niðurstaðan sú að 126 af 127 af lántakendum í 180 eininga námi í hjúkrunarfræði myndu standa betur að vígi yrði LÍN-frumvarpið að lögum. Sömu sögu er að segja af 193 af 207 lántakendum í 180 eininga kennaranámi. Þá myndi hagur 21 af 22 lántakendum í 180 eininga leikskólakennaranámi vænkast og sama er að segja um hag allra þriggja lántakenda í 180 eininga námi í hagnýtri kynjafræði. Af þessum dæmum leiðir að þessar „kvennastéttir“ hafi mikla hagsmuni af því að frumvarpið verði að lögum.

Það er staðreynd að yfirgnæfandi meirihluti námsmanna mun verða í betri fjárhagslegri stöðu verði frumvarpið samþykkt. Frumvarpið miðar að því að minnka brottfall nemenda og auka líkurnar á að þeir ljúki námi á tilsettum tíma, auk þess að gera námslánakerfi ríkisins gagnsærra og sanngjarnara. Þá mun frumvarpið hvetja námsmenn til að vinna minna með námi, enda munu þeir fá mánaðarlegan 65 þúsund króna styrk frá ríkinu.

Eða kannski, ef eitthvað er að marka orð þingmanns Pírata í ræðustól Alþingis, mun bætt fjárhagsstaða námsmanna fyrst og fremst skila sér í aukinni drykkju á börum bæjarins. Orð þingmannsins dæma sig sjálf, en það er nauðsynlegt til að dæma frumvarpið út frá réttum upplýsingum. Kynna má sér til dæmis ítarlega greiningu Stúdentaráðs (sem stjórnarandstaðan kvartaði reyndar yfir að væri of ítarleg!) á heimasíðu SHÍ, student.is.

Þessi grein birtist upphaflega í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×