
Fyrningar- og uppboðsleið: Málamiðlun í kvótamálum
Sú breyting sem kallað er eftir þarf ekki og á ekki að valda kollsteypum eins og sumir óttast og aðrir hræða með. Farsæl leið þarf að uppfylla eftirtalin skilyrði:
Breytingar hafi eðlilegan aðdraganda.
Nýtt fyrirkomulag feli í sér vissa festu bæði fyrir sjávarútveginn og þjóðina.
Með breyttu kerfi sé stuðlað að auknu aðgengi fyrir nýliða.Fullt gegnsæi í ráðstöfun aflaheimilda.
Auðlindaarðurinn skili sér til þjóðarinnar.
Útboð stuðlar að sátt
Lengi, en þó ekki síst nú undanfarið, hafa margir bent á leið sem nær þessum markmiðum ef vel er að verki staðið. Hér skal þess freistað að draga saman meginatriði slíkrar málamiðlunarleiðar:
Hægfara innköllun á núverandi aflahlutdeildum með hlutfallslegri skerðingu þeirra ár hvert. Skerðingarhlutfallið yrði pólitísk málamiðlun, en gæti t.d. verið á bilinu 10% til 20%. Það merkir að 80-90% eru kvaðalaust til ráðstöfunar frá fyrra ári til þess næsta. Núverandi handhafar kvótanna fá því rúma aðlögun. Sýna má fram á að þeir halda stórum hluta af núvirði alls auðlindaarðsins. Sú eftirgjöf er hluti málmiðlunarinnar.
Uppboð á þeim kvótum sem þannig losna á hverju ári. Uppboðin þjóna tvíþættum tilgangi: Þeim að veita nýliðum aðgengi og að skila eðlilegum arði til eigandans, þjóðarinnar. Einfaldast er að hinar uppboðnu aflahlutdeildir lúti sömu skilyrðum og þær innkölluðu, þær skerðist með sama hætti. Við það skapast einsleitni í kerfinu, sem leiðir til festu og stöðugleika.
Komið í veg fyrir samþjöppun kvóta og byggðaröskun. Þetta má gera með ýmsu móti, jafnvel að skerpa á þeim ákvæðum sem nú gilda og hafa ekki reynst sem skyldi.
Útfærslan sjálf getur verið með ýmsu móti. Sem dæmi má nefna:
Jaðarverð í uppboðunum. Gagnrýnt hefur verið að smáútgerðir kynnu að fara sér að voða með of háum tilboðum. Við þessu má sjá með því að verðið fyrir alla kvóta sem seldir eru á hverju uppboði sé jafnt því lægsta verði sem tekið er. (Færeyingar kalla þetta „lokuð“ uppboð sem hefur illu heilli verið misskilið hér því það er alls ekki lokað og allar færeyskar útgerðir hafa fengið að taka þátt í þeim útboðum sem þær kjósa.)
Kvótar utan uppboða handa trilluköllum. Sagt er að þeir geti ekki staðið í því að taka þátt í uppboðum (enda þótt þeir séu seigir á fiskmörkuðum). Við þessu má sjá með því að taka frá vissan hluta sem þeir gætu keypt utan uppboða á markaðsverði.
Festa með samningum. Allt fyrirkomulagið má, ef þurfa þykir, njörva niður í formi samninga milli stjórnvalda og þeirra sem hafa kvótana nú svo og þeirra sem kunna að afla þeirra á uppboðum.
Sú leið málamiðlunar, sem hér er reifuð, uppfyllir fyrrgreind markmið um aðgengi nýliða og skil á arði til þjóðarinnar. Allir sitja við sama borð og fullt gagnsæi er tryggt. Hún felur ekki í sér neina kollsteypu heldur hægfara umskipti. Þá tekur hún þann kaleik frá stjórnmálamönnum að þurfa árlega að karpa um upphæð veiðigjalda. Útgerðin ákveður auðlindagreiðslurnar í reynd sjálf þegar hún tekur þátt í útboði veiðiheimildanna.
Kjósendur krefjist skýrra svara
Vitaskuld er aðferðin ekki gallalaus fremur en önnur mannanna verk. Verra er að hún hefur verið misskilin – viljandi eða óviljandi. Nefna má að gefið hefur verið í skyn að með fyrningum á kvótum sé verið að leggja sjávarútveginn niður skref fyrir skref, um 10-20% á ári þar til allt er í rúst. Svo er vitaskuld ekki. Allir kvótar munu ganga út og veiðar halda áfram ótrauðar þótt breytingar kunni að verða á því hverjir stunda atvinnuveginn, allt eins og gerist í öðrum atvinnugreinum.
Meira en 80% þjóðarinnar vilja að ákvæði um þjóðareign á auðlindunum sé fest í stjórnarskrá, eins og fram kom í þjóðaratkvæðagreiðslunni 20. október 2012. Vitaskuld er þá ekki aðeins verið að tala um fagurgala til nota í hátíðarræðum heldur bitastæð ákvæði sem veiti þjóðinni í reynd eigendavald og þar með eðlilegt endurgjald. Í orði kveðnu virðast stjórnmálaflokkarnir allir þessa sama sinnis, en segjast sumir hverjir efast um leiðirnar. Af þeim flokkum sem munu bjóða fram í komandi kosningum verður að ætla að hið minnsta Björt framtíð, Píratar, Samfylkingin, Viðreisn og Vinstri-grænir, vilji að farin verði leið í anda þeirrar sem hér er reifuð. Vonandi bætast fleiri flokkar í hópinn. Krefjast verður skýrra svara svo að kjósendur kaupi ekki köttinn í sekknum við kjörborðið 29. október 2016.
Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Skoðun

Hlustum á náttúruna
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Skattheimta sem markmið í sjálfu sér
Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar

Tæknin hjálpar lesblindum
Guðmundur S. Johnsen skrifar

Tryggja þarf aðkomu sjómanna að fiskveiðiráðgjöfinni
Sigurjón Þórðarson skrifar

Opið bréf til Friðriks Þórs
Steven Meyers,Guðrún Elsa Bragadóttir,Ása Helga Hjörleifsdóttir,Brúsi Ólason,Erlendur Sveinsson,Heather Millard skrifar

Skjólveggur af körlum og ungum mönnum
Ólafur Elínarson skrifar

Menntamál eru ekki afgangsstærð
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

‘Vók’ er djók
Alexandra Briem skrifar

Er friður tálsýn eða verkefni?
Inga Daníelsdóttir skrifar

Kattahald
Jökull Jörgensen skrifar

Framtíðin er rafmögnuð
Jóhanna Hlín Auðunsdóttir skrifar

Ekki biðja um undanþágur heldur krefjast réttar samkvæmt EES-samningnum
Erna Bjarnadóttir skrifar

Þjóðarmorðið í blokkinni
Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar

Breiðholtið er frábært! Gerum betur í umfjöllun og orðræðu
Kristín Dögg Kristinsdóttir skrifar

Ég hataði rafíþróttir!
Þorvaldur Daníelsson skrifar

Því miður hefur lítið breyst
Áslaug Hulda Jónsdóttir skrifar

Versta sem Ísland gæti gert
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Eru græn svæði í útrýmingarhættu í Reykjavík?
Sigrún Ásta Einarsdóttir skrifar

Efla á forvarnir og setja börn í öndvegi með 5,7 milljarða niðurskurði
Grímur Atlason skrifar

„...ég lærði líka að nota gagnrýna hugsun“
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir skrifar

Risastór niðurskurður ríkistjórnarinnar er áfall fyrir foreldra og börn í landinu
Sigurður Sigurðsson skrifar

Látið okkur í friði
Vilhjálmur Árnason skrifar

Gefðu fimmu!
Ágúst Arnar Þráinsson skrifar

Allar hendur á dekk!
Oddný G. Harðardóttir skrifar

Engin sátt án sannmælis
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Að finna rétt veiðigjald...
Bolli Héðinsson skrifar

Hvað viltu að samskiptin á vinnustaðnum kosti?
Carmen Maja Valencia skrifar

Stórt inngrip í rekstur íþróttafélaga!
Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir skrifar

Börn voga sér inn í afbrotaheim fullorðinna eða er það öfugt?
Davíð Bergmann skrifar

Sósíalistaflokkurinn verður að snúast um meira en rassgatið á Gunnari Smára
Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar