Við sjáum ferðaþjónustuna sem hefur sprungið út á undanförnum árum en sjáum líka að það er mikið ógert í að hún leggi af mörkum með eðlilegum hætti og að ferðamenn greiði fyrir þá þjónustu sem nauðsynlegt er til þess að byggja upp vegna þeirrar miklu fjölgunar. Við eigum ekki að greiða fyrir ferðaþjónustuna af almennu skattfé frekar en innviði sem aðrar atvinnugreinar kalla á," sagði Árni Páll í ræðu sinni.
Borgunarhneysklið eigi að vera einsdæmi, ekki fordæmi
Árni Páll fór um víðan völl og kom meðal annars inn á fjármálakerfið. Sagði hann að verði fjármálakerfið selt óbreytt muni nýir vildarvinir kaupa bankana og rukka íslenskan almenning og fyrirtæki um ofurvexti til að fá inn fyrir kaupverðinu, líkt og síðast þegar bankarnir voru seldir. Arður eigi að fást af ríkiseignum og gefa þurfi ófrávíkjanleg fyrirmæli um samkeppni um sölu þeirra.
„Borgunarhneykslið á að verða einsdæmi, ekki fordæmi. Þess vegna eigum við ekki að selja fjármálakerfið óbreytt, eins og formaður Sjálfstæðisflokksins er að fitja upp á þessa dagana,“ sagði hann. Brjóta þurfi bankana upp og raða hlutunum upp á nýtt enda eigi sumir þættir bankarekstrar ekki heima með öðrum í fákeppnisumhverfi.
„Grunngreiðslukerfin eiga að vera aðskilin öðrum rekstri og öllum aðgengileg og koma þarf í veg fyrir áhættufjárfestingar með innistæðu fólks og binda enda á ofurvald fjármálafyrirtækja yfir fólki.“

„Það er stundum eins og lagt sé að jöfnu að vera sjálfstæð þjóð og hafa sjálfstæða mynt. Ekkert er fjarri lagi. Íslenska krónan er okkur dýr og hamlar í raun framförum,“ sagði Oddný G. Harðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, í ræðu sinni. Hún kallaði jafnframt eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið.
„Á meðan við erum ekki í stærra myntbandalagi verðum við að bera þann kostnað. Það er bjargföst trú mín að Ísland eigi samleið með Evrópusambandinu í framtíðinni. Þjóðin þarf hins vegar að taka sameiginlega ákvörðun um næstu skrefin í þeirri vegferð.“