Þátturinn er á dagskrá Stöðvar 2 á miðvikudagskvöldum klukkan 19:45.
Í hverjum þætti fá Eva og Gummi til sín keppendur sem þau skipta með sér í lið. Keppnin gengur svo út á það að í byrjun fá þau að velja einn ísskáp af nokkrum mögulegum og í hverjum ísskáp er hráefni fyrir forrétt, aðalrétt og eftirrétt.
Keppendur og liðsstjórar þurfa svo að vinna innan ákveðins tímaramma til að töfra fram þrjá girnilega rétti. Að lokum fellur það í hlut dómaranna að velja sigurvegara kvöldsins. Dómarar eru Siggi Hall og Hrefna Sætran. Að þessu sinni var Guðrún Sóley í liði með Gumma Ben og Gísli í liði með Evu Laufey. Hér að neðan má sjá hvernig til tókst með aðalréttinn hjá liðunum.