Tónlistarsjóðurinn Kraumur tilkynnti í dag tilnefningar ti Kraumsverðlaunanna í ár með birtingu Kraumslistans 2016. 25 verk eru tilnefnd sem þykja hafa skarað framúr í íslenskri tónlist á árinu. Verðlaunin verða afhent í níunda sinn síðar í mánuðinum.
Verðlaununum er ætlað að kynna og styðja við útgáfustarfsemi íslenskra tónlistarmanna og hljómsveita með því að verðlauna og vekja athygli á því sem er nýtt og spennandi sem og þeim verkum sem þykja skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika.
Allar íslenskar plötur sem hafa komið út á árinu eiga möguleika á að komast á listann og í ár voru alls 176 plötur til hlustunar og umfjöllunar hjá dómnefnd.
Kraumslistinn 2016, úrvalslisti Kraumsverðlaunanna, er eftirfarandi:
Alvia Islandia - Bubblegum Bitch
Amiina - Fantomas
Andi - Andi
Aron Can - Þekkir stráginn
Arve Henriksen, Hilmar Jensson, Skúli Sverrisson - Saumur
asdfhg - Kliður
Bára Gísla - Brimslóð
CYBER is CRAP - EP
EVA808 - Psycho Sushi
GKR - GKR
Glerakur - Can't You Wait
Gyða Valtýsdóttir - Epicycle
Indriði - Makril
Kef LAVÍK - Vesæl í kuldanum
Kuldaboli - Vafasamur lífstíll
Kælan mikla - Kælan mikla
Naðra - Allir vegir til glötunar
Pascal Pinon - Sundur
Páll Ívan frá Eiðum – This is my shit
Reykjavíkurdætur - RVK DTR
Samaris - Black Lights
Sigrún Jónsdóttir - Hringsjá
Snorri Helgason - Vittu til
Suð - Meira Suð
Tófa - Teeth Richards
Kraumslistinn og Kraumsverðlaunin eru valin af fjórtán manna dómnefnd. Dómnefndina í ár skipa; Árni Matthíasson (formaður), Andrea Jónsdóttir, Anna Ásthildur Thorsteinsson, Alexandra Kjeld, Arnar Eggert Thoroddsen, Benedikt Reynisson, Berglind Sunna Stefánsdóttir, Heiða Eiríksdóttir, Helga Þórey Jónsdóttir, Hildur Maral Hamíðsdóttir, Jóhann Ágúst Jóhannsson, Tanya Pollock, Trausti Júlíusson og Óli Dóri.
Þetta eru 25 bestu plötur ársins 2016 að mati Kraums
