Fregnirnar byggja á skýrslu sem skrifuð var af breskum fyrrverandi leyniþjónustumanni sem starfar nú sjálfstætt. Skýrslan er sögð hafa verið í dreifingu í Washington um mánaðaskeið en engum virðist hafa tekist að staðfesta innihald hennar.
Buzzfeed hefur þó birt skýrsluna í heild sinni. svo almenningur í Bandaríkjunum geti séð hana og „tekið eigin ákvörðun“ um trúverðugleika skýrslunnar.
Trump hefur brugðist reiður við og þvertekur fyrir þessar fréttir. Sjálfur segir Trump þetta vera „falskar fréttir“ og „pólitískar nornaveiðar“ og starfsmenn hans eru sammála. Þeir segja demókrata vinna hörðum höndum að því að draga úr trúverðugleika Trump sem forseta.
Talsmaður Vladimir Putin, forseta Rússlands, slær á svipaða strengi og segir málið vera „skáldskap og vitleysu“.
FAKE NEWS - A TOTAL POLITICAL WITCH HUNT!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) January 11, 2017
'BuzzFeed Runs Unverifiable Trump-Russia Claims' #FakeNews https://t.co/d6daCFZHNh
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) January 11, 2017
Alríkislögregla Bandaríkjanna hefur þessar ásakanir og fregnir til skoðunar, eftir að John McCain færði James Comey, yfirmanni FBI, skýrsluna í síðasta mánuði. Því var innihald skýrslunnar kynnt Obama og Trump. Óttast var að innihald hennar myndi leka áður en rannsókn yrði lokið. New York Times segir ákvörðun leyniþjónustanna vera „einstaklega óvenjulega“.
Ljóst er að pólitískir andstæðingar Trump greiddu fyrir gerð skýrslunnar.
Í skýrslunni er því haldið fram að Rússar hafi fylgst með og safnað upplýsingum um Trump um langt skeið. Einnig hafi rússneskir njósnarar útvegað honum upplýsingar um mótframbjóðenda hans, Hillary Clinton.
Meðal annars eru Rússar sagðir eiga myndband og upptökur af Trump og hópi vændiskvenna á hóteli í Moskvu árið 2013. Trump á að hafa gist í sama herbergi og Obama hjónin gistu einu sinni í opinberri heimsókn til Rússlands. Samkvæmt sögusögnunum á Trump að hafa látið vændiskonurnar pissa á hvora aðra í rúminu fyrir framan hann.
Trump hefur margsinnis ferðast til Rússlands á undanförnum árum. Bæði vegna mögulegra viðskipta og til að fylgjast með framkvæmd Miss Universe fegurðarkeppninnar.
Þá segir í skýrslunni að starfsmenn Trump hafi átt í samskiptum við rússneska njósnara varðandi tölvuárásir Rússa.
Russia just said the unverified report paid for by political opponents is "A COMPLETE AND TOTAL FABRICATION, UTTER NONSENSE." Very unfair!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) January 11, 2017
Russia has never tried to use leverage over me. I HAVE NOTHING TO DO WITH RUSSIA - NO DEALS, NO LOANS, NO NOTHING!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) January 11, 2017
I win an election easily, a great "movement" is verified, and crooked opponents try to belittle our victory with FAKE NEWS. A sorry state!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) January 11, 2017
Intelligence agencies should never have allowed this fake news to "leak" into the public. One last shot at me.Are we living in Nazi Germany?
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) January 11, 2017