

Kína og erfiður tími fyrir Bitcoin
Yfirleitt tek ég, og aðrir sem fylgjast með fjármálamörkuðum heimsins, lítið eftir þróun Bitcoin. Hins vegar segir þróunin síðasta árið, og sérstaklega síðasta hálfa mánuðinn, okkur áhugaverða sögu um næststærsta hagkerfi heimsins – Kína.
Gilda engar reglur
Ef við lítum á þróun hins kínverska renminbi og Bitcoin síðasta árið sjáum við að það hefur verið tiltölulega sterk öfug fylgni á milli „gjaldmiðlanna“ tveggja og þetta samband hefur styrkst eftir að ljóst varð að kínversk yfirvöld hafa hrundið af stað hægfara gengislækkun renminbi.
Árið 2014 fóru vangaveltur á mörkuðunum vaxandi um að kínverski seðlabankinn – Alþýðubanki Kína – myndi leyfa renminbi að veikjast og með tímanum taka upp fljótandi gengisstefnu. Síðan í árslok 2015 hefur orðið ljóst að bankinn hefur í raun tekið upp þá stefnu að láta gengi renminbi síga jafnt og þétt.
Fjárfestar hafa smám saman áttað sig á þessu og því hefur verið skynsamlegt að færa sig úr renminbi og yfir í aðra gjaldmiðla. En gjaldmiðlaflæði er ekki alveg frjálst í Kína og þess vegna er erfiðara að taka „skortstöðu“ gagnvart renminbi. En um Bitcoin-markaðinn gilda engar reglur – ekki heldur í Kína.
Þess vegna hafa kínverskir fjárfestar reynt að fara í kringum gjaldeyrishöftin með því að kaupa Bitcoin (fyrir renminbi). Afleiðingin er sú að nú hefur Kína næstum 90% „markaðshlutdeild“ í viðskiptum með Bitcoin. Markaðshlutdeild sem hefur margfaldast síðan 2014-15 þegar væntingar um veikara renminbi komu fram fyrir alvöru.
Varla tilviljun
Þetta þýðir líka að uppsveiflan á verði Bitcoin á síðustu tveimur árum er í raun aðallega vegna ótta við „kínverskt gengissig“, en það þýðir líka að hættan á meiriháttar falli á verði Bitcoin er nátengd þróun renminbis og kínverskri gjaldeyrisstefnu. Þar af leiðir að ef Kínverjar tækju upp algerlega frjálsan gjaldeyrismarkað væri engin þörf á að nota Bitcoin til að fara í kringum gjaldeyrishöftin. Og ef renminbi væri látinn fljóta myndi gjaldmiðillinn fljótt finna „eðlilegt“ verðgildi sitt og þá myndi gjaldeyrisútstreymið hætta um leið og væntingar um gengisfall hyrfu.
Og að lokum: Ef Alþýðubanki Kína myndi hætta við þá stefnu að láta gengið síga og festa renminbi við dollarann á trúverðugan hátt – til dæmis ef Kína yrði þvingað til að gera þetta af nýju Trump-stjórninni – þá myndi það sennilega valda nýju falli á verðgildi Bitcoin. Þetta er auðvitað nákvæmlega það sem við sáum í síðustu viku þegar Alþýðubankinn greip sterkt inn í á gjaldeyrismarkaðnum til að styrkja renminbi. Sama dag og þetta gerðist hrapaði gengi Bitcoin. Það er varla tilviljun.
Skoðun

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar

Börn í skugga stríðs
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Gunnar Örn Vopnfjörð Þorsteinsson skrifar

Hvernig gerum við Grundarhverfi enn betra?
Ævar Harðarson skrifar

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar

Af hverju er Framsóknarfólk hamingjusamast?
Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar

Norska leiðin hefur gefist vel – í Póllandi
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Opið hús fyrir útvalda
Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar

Af hverju hræðist fólk kynjafræði?
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hlustum á okkar landsliðskonur - sýnum Ísrael rauða spjaldið
Hrönn G. Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar

Hópnauðganir/svartheimar!
Davíð Bergmann skrifar

Valdið og samvinnuhugsjónin
Kjartan Helgi Ólafsson skrifar

NPA breytti lífinu mínu
Sveinbjörn Eggertsson skrifar

Hefur þú tilkynnt um ofbeldi gegn barni?
Alfa Jóhannsdóttir skrifar

Gildi kærleika og mannúðar
Toshiki Toma skrifar

Hvernig tryggjum við samkeppnishæfni þjóðar?
Jón Skafti Gestsson skrifar

Í minningu Frans páfa - sem tók sér nafn verndardýrlings dýra og náttúru
Árni Stefán Árnason skrifar

Flottu kjötauglýsingarnar í blöðunum...
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Grafarvogsgremjan
Þorlákur Axel Jónsson skrifar

Er ég að svindla? – Um sambýli manns og gervigreindar í sköpun og þekkingu
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Fjármögnuðu stríðsvél Rússlands
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hugleiðingar á páskum
Ámundi Loftsson skrifar

Gremjan í Grafarvogi
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Samlokan á borðinu: Hugleiðingar á föstudeginn langaum sjónvarpsþættina Adolescence
Skúli Ólafsson skrifar

Móttaka skemmtiferðaskipa - hlustað á íbúa
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar