Íranar staðfesta eldflaugaskot Samúel Karl Ólason skrifar 1. febrúar 2017 11:57
Varnarmálaráðherra Íran viðurkenndi í dag að eldflaug hefði verið skotið á loft í tilraunaskyni þar í landi um helgina. Hann neitar því þó að tilraunaskotið hafi brotið gegn samkomulagi Íran við stórveldi heimsins um kjarnorkuvopnaáætlun þeirra, né ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sem bannar Írönum að þróa eldflaugar sem gætu borið kjarnorkuvopn. Þetta er fyrsta tilraunaskot Íran frá því að Donald Trump varð forseti Bandaríkjanna, en hann hefur lýst yfir andstöðu sinni við kjarnorkusamkomulagið svokallaða. Í kosningabaráttunni sagðist hann ætla að stöðva eldflaugatilraunir Írana. Hossein Dehghan, varnarmálaráðherra Íran, segir þó að erlendir aðilar muni ekki hafa áhrif á varnarmál Íran. Skotið hafi ekki brotið gegn ályktun Öryggisráðsins, né kjarnorkusamkomulaginu. Þá segir utanríkisráðherra Íran að ríkið muni aldrei notast við eldflaugar sínar til að ráðast á annað ríki. Bandaríkin höfðu haldið því fram að Íran hefði skotið eldflaug á loft á sunnudaginn og hún hefði sprungið eftir að hafa flogið rétt rúma þúsund kílómetra. Bandaríkin hafa óskað eftir sérstökum fundi hjá Öryggisráðinnu vegna tilraunaskotsins. Nikki Haley, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, segir að Bandaríkin muni ekki sitja aðgerðarlaus hjá og að tilraunaskot slíkra eldflauga sé „algerlega óásættanlegt“.
Donald Trump Mest lesið „Nú hættir þú Sigurður!“ Innlent Hafa vísað hundrað leigubílstjórum á brott frá flugstöðinni vegna brota á reglum Innlent Sólveig Anna segir skilið við Sósíalista Innlent Neitar að hafa orðið föður sínum að bana Innlent Eldur Smári segir að sér sé markvisst haldið í myrkrinu Innlent Tíufréttir heyra sögunni til Innlent Sérsveitin aðstoðar lögregluna á Suðurlandi Innlent Beittu neyðarstöðvun til að forðast árekstur við Herjólf Innlent Óreiðan ræður ríkjum í Pentagon Erlent Barnaníðingur situr inni þar til hann verður sendur til Litáen Innlent Fleiri fréttir Sænskur blaðamaður gæti farið í fangelsi fyrir að móðga Erdogan Vilja ræða frið en ekki uppgjöf Rýna í innyfli deyjandi reikistjörnu Vill enn stærra vopnabúr fyrir næstu stríð Umfangsmesta fölnun kóralrifja sem sögur fara af Óreiðan ræður ríkjum í Pentagon Eigandi Paramount með puttana í umfjöllun 60 mínútna Frjálslyndir með forskot á lokaspretti kosningabaráttunni Úkraínufundinum í London frestað Lík páfans flutt í Péturskirkju í dag Mikil reiði eftir árásina í Kasmír Segir 60 mínútur hafa misst sjálfstæðið og hættir Sagður bjóða frið fyrir formlega eign á Krímskaga Valdatafl í Vatíkaninu: Hver verður næsti páfi? Banað af hákörlum þar sem fólk hefur lengi synt með þeim Á þriðja tug látnir eftir árás á ferðamenn í Kasmír Meirihluti eftirlifenda helfararinnar hverfur næsta áratuginn Harvard stefnir Bandaríkjastjórn vegna þvingunaraðgerða hennar Leyniþjónustustjóri ber Netanjahú þungum sökum Drottningin lögð inn vegna veikinda Eldur í öðrum hreyfli vélar Delta í Flórída Útför páfans á laugardag Greint frá dánarorsök páfans Dánarorsök páfans talin vera heilablóðfall Trump styður Hegseth: Neitar að um trúnaðarbrest hafi verið að ræða Breskir þingmenn leggjast gegn því að Trump ávarpi þingið Skýrslan sé „full af lygum“ Leiðtogar minnast páfans Hvernig er nýr páfi valinn? Loftvarnarsírenur óma á ný eftir skammvinnt „vopnahlé“ Sjá meira