Í þættinum fengu áhorfendur að hlusta á hvernig markmiðin gengu hjá nokkrum vel þekktum Íslendingum.
Rætt var við Geir Gunnar Markússon, næringarfræðing, sem fór vel yfir það hvernig best er að koma næringunni á rétta braut. Hann segir að það sé nauðsynlegt að við Íslendingar minnkum sykurinntöku og að matarræðið skipti mun meira máli en hreyfingin ætli fólk sér að léttast.
Einnig var rætt á ný við Gunnar Svanbergsson, sjúkraþjálfari, sem fór yfir líkamsstöðu fólks og hvað maður ætti að forðast á þeim vettvangi.
Pálmar heyrði að vanda í sérfæðingum þáttarins sem eru; Anna Steinsen, markþjálfi og eigandi KVAN, Hafrún Kristjánsdóttir sálfræðingur, Viðar Halldórsson, lektor í félagsfræði og Björn Berg Gunnarsson, fræðslustjóri Íslandsbanka.
Hér að ofan má sjá þáttinn og einnig má sjá myndir inni á Instagram sem koma undir kassamerkinu #meistaram.