Finnur Ingólfsson, fyrrverandi forstjóri VÍS, segist ekki eigandi hins dularfulla Dekhill Advisors á nokkurn hátt, né nokkur sér tengdur.
Takmarkaður upplýsingar eru til um félagið sem hlaut hluta hagnaðarins af Hauck & Aufhäuser-fléttunni við sölu Búnaðarbankans á móti Ólafi Ólafssyni. Um er að ræða 46,5 milljónir dollara sem að núvirði eru 4 milljarðar króna.
Finnur hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar fréttar Vísis af vangaveltum Vilhjálms Bjarnasonar þingmanns, sem gerir því skóna að maðurinn á bak við Dekhill Advisors sé Finnur. Það gerir Vilhjálmur án þess þó að segja það hreint út heldur lætur vini sína á Facebook leiða að því líkum.
Finnur segir: „Í tilefni af Facebókarfærslu Vilhjálms Bjarnasonar alþingismanns, og fréttar sem birt er vegna hennar á www.visir.is vil ég taka eftirfarandi fram:
Hvorki ég eða nokkur sem mér tengist er eigandi að félaginu Dekhill Advisors líkt og Vilhjálmur dylgjar að og slegið er upp í frétt á www.visir.is.“
Finnur segist ekki eiga Dekhill Advisors

Tengdar fréttir

„Finnst þér líklegt að alþjóðlegur banki standi í slíku?“
Þetta var svar Finns Ingólfssonar þegar hann var spurður hvort þýski bankinn hefði verið leppur í kaupum á hlut í Búnaðarbankanum.

„Hvaða kynþokkafulli maður á afmæli 8. ágúst og er fæddur 1954?“
Vilhjálmur bendir á Finn sem manninn á bak við Dekhill Advisors án þess þó að segja það.

Finnur Ingólfsson kannast ekki við að þýski bankinn hafi verið leppur
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis vinnur að skipun rannsóknarnefndar vegna aðkomu þýska bankans Hauck & Aufhäuser að kaupum á Búnaðarbankanum. Aðilar innan S-hópsins kannast ekki við að bankinn hafi verið leppur.