Christoffer Ung var inn í verslun Åhlens City en vörubílnum var ekkið inn í versluna. Hann lýsir því hvernig mikill hvellur heyrðist og taldi hann víst að sprengja hefði sprungið.
Í samtali við SVT segir kona að nafni Nasrin að vörubílnum hafi verið ekið á miklum hraða um götuna áður en hann skall á versluninni. Lýsir hún því hvernig vörubíllinn hafi verið ekki á allt sem var í vegi hans og að hún hafi séð konu sem hafði misst lappir sínar.
Sjá einnig: Vörubíl ekið á fólk og inn í verslun í miðborg Stokkhólms
Nasrin kom til Svíþjóðar sem flóttamaður frá Sýrlandi fyrir um áratugi síðan og segist hún ekki vita hvernig henni eigi að líða núna.

Vörubílnum sem notaður var í árásinni var rænt af grímuklæddum manni skömmu fyrir árásina þar sem bílstjórinn var að afhenda vörur, en bíllinn tilheyrði bjórframleiðandanum Spendrups. Bílstjóri vörubílsins reyndi að stöðva árásarmanninn og slasaðist lítillega þegar ekið var utan í hann.
Í samtali við AFP lýsa vitni því hvernig vörubíllinn hafi allt í einu birst á miklum hraða, nánast upp úr þurru. Maður að nafni Dimitris segist ekki hafa séð hvort að einhver hafi verið við stýri bílsins en hann hafi séð tvo vegfarendur verða fyrir bílnum og þá hafi hann ákveðið að hlaupa á brott eins hratt og hægt var.
Lögreglan í Stokkhólmi hefur lýst eftir manni í tengslum við árásina í borginni fyrr í dag. Lögreglan hefur birt mynd af manninum sem tekin var í neðanjarðarlestarkerfi borgarinnar. Var hann klæddur í svarta hettupeysu og grænan jakka.
Mynd af manninum var birt á blaðamannafundi sænsku lögreglunnar fyrir stundu en þar óskaði lögreglan eftir því að fá upplýsingar um manninn. Forsætisráðherra Svíþjóðar segir allt benda til þess að um hryðjuverkaárás hafi verið að ræða.