

Kolefnisbinding er náttúruvernd
Skógrækt er ein öflugasta aðgerð sem Íslendingum stendur til boða til að ná markmiðum sínum í Parísarsamkomulaginu. Ráðast þarf í miklu fleiri aðgerðir og leggja áherslu á að draga úr losun. Það nægir þó ekki að draga úr losun því minnka þarf þann koltvísýring sem þegar hefur verið losaður út í andrúmsloftið og enn á eftir að bætast við á komandi árum. Skógrækt er besta og öruggasta leiðin sem við höfum til þess.
Aðrar leiðir, svo sem að bleyta aftur upp í framræstu landi eða að græða upp land án skógræktar, geta vafalaust verið góðar loftslagsaðgerðir í mörgum tilvikum. Enn er þó ekki er til vöktunarkerfi til að mæla ávinninginn og nokkuð vantar upp á þekkinguna svo við getum spáð fyrir um árangur einstakra aðgerða. Miklar rannsóknir eru aftur á móti til um bindingu í skógi á Íslandi og Rannsóknastöð skógræktar Mógilsá rekur vöktunarkerfi sem mælir bindingu alls skóglendis á Íslandi og skilar til Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna.
Skógrækt á Íslandi ógnar ekki náttúrugæðum landsins. Í skógræktaráætlunum er ávallt sneitt hjá votlendi, fornleifum og öðrum verndarsvæðum. Ekki þarf að hafa áhyggjur af því að skógrækt spilli fyrir því að Íslendingar geti staðið við Ramsarsáttmálann um vernd votlendis, Ríósamninginn um vernd líffjölbreytni eða Bernarsamninginn um vernd evrópskra dýra, plantna og lífsvæða. Yfirleitt eykur skógrækt líffjölbreytni, ekki síst þar sem skógur er ræktaður á nær líflausum auðnum og gildir þá einu hvaða trjátegundir eru notaðar. Á slíkum svæðum er vonast til að aukið samstarf Skógræktarinnar og Landgræðslu ríkisins beri mikinn ávöxt á komandi árum með ræktun öflugra skóga þeirra trjátegunda sem best henta til að ná settum markmiðum. Með því er jafnframt tryggt að gróður, jarðvegur og uppsafnað kolefni landgræðslusvæða haldist við til frambúðar og eigi ekki á hættu að eyðast snögglega, til dæmis í einu öskugosi.
Engin ógn af skógrækt
Þetta þýðir þó ekki að skógrækt eigi að vera án takmarkana og hömlulaus. Langt er frá því að svo sé. Miklar skorður eru settar við skógrækt á Íslandi og skýrar reglur sem fylgja þarf við gerð skógræktaráætlana. Skógrækt fer að langmestu leyti fram á landbúnaðarlandi annars vegar og auðnum hins vegar. Þegar tekið er tillit til þess að ræktaður skógur nær ekki hálfu prósenti flatarmáls Íslands er óhætt að fullyrða að af skógrækt standi engin ógn. Jafnvel þótt við tífölduðum flatarmál ræktaðra skóga yrðu þeir ekki nema á 5 hundraðshlutum landsins, sem er lítið miðað við allt það villta birkiskóglendi sem á landinu var við landnám.
Í nýjum lögum um skóga og skógrækt sem umhverfis og auðlindaráðherra hefur lagt fram á Alþingi er gert ráð fyrir að ráðherra leggi fram landsáætlun í skógrækt til tíu ára í senn. Hafa skuli víðtækt samráð við gerð áætlunarinnar, til dæmis um forsendur fyrir vali á landi til skógræktar með tilliti til náttúruverndar, minjaverndar og landslags. Sú áætlun minnkar áreiðanlega núning milli hagaðila um nýtingu lands.
Áhugavert er að skoða þær plöntutegundir sem eru friðaðar samkvæmt íslenskum lögum. Þá kemur í ljós að á listanum eru ýmsar tegundir sem í öðrum löndum þrífast helst í skógi svo sem súrsmæra, skógfjóla, ferlaufungur og eggtvíblaðka. Fleiri íslenskar tegundir ættu að geta breiðst út með auknum skógum, til dæmis burknategundir sem nú finnast eingöngu í dimmum klettaskorum og giljum. Ástæða væri til að dreifa slíkum tegundum í skógum landsins til að auðga flóru skóganna og tryggja viðgang tegundanna.
Skógrækt á Íslandi er stunduð með varfærnum og vönduðum hætti. Auðvitað má þó alltaf gera betur og að því er stefnt. Upplýsingar og rannsóknir hjálpa þar mjög.
Skoðun

Flottu kjötauglýsingarnar í blöðunum...
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Grafarvogsgremjan
Þorlákur Axel Jónsson skrifar

Er ég að svindla? – Um sambýli manns og gervigreindar í sköpun og þekkingu
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Fjármögnuðu stríðsvél Rússlands
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hugleiðingar á páskum
Ámundi Loftsson skrifar

Gremjan í Grafarvogi
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Samlokan á borðinu: Hugleiðingar á föstudeginn langaum sjónvarpsþættina Adolescence
Skúli Ólafsson skrifar

Móttaka skemmtiferðaskipa - hlustað á íbúa
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar

Námsfærni nemenda í íslenskum skólum: Eigum við að lækka rána?
Sigríður Ólafsdóttir skrifar

Þegar mannshjörtun mætast
Jóna Hrönn Bolladóttir,Bjarni Karlsson skrifar

Horft til einkunna og annarra þátta við innritun í framhaldsskóla
Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar

Kristján á Sprengisandi lendir í ágjöf
Björn Ólafsson skrifar

Unglingar eiga skilið heildstætt mat frá framhaldsskólum
Sigurður Kári Harðarson skrifar

Stöðvum glæpagengi á Íslandi
Hjalti Vigfússon skrifar

Jafnlaunavottun - „Hverjir græða á jafnlaunavottun“
Gunnar Ármannsson skrifar

Gervigreind í skólum: Tækifæri sem fáir eru að ræða?
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Enginn matur og næring án sérfræðiþekkingar
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

Öll endurhæfing er í eðli sínu starfsendurhæfing
Sveindís Anna Jóhannsdóttir skrifar

„Bíddu, varst þú ekki að biðja um þessa greiðslu?“
Heiðrún Jónsdóttir skrifar

Rétta leiðin til endurreisnar menntakerfisins?
Birgir Finnsson skrifar

Tvær dætur á Gaza - páskahugvekja
Viðar Hreinsson skrifar

Ef það líkist þjóðarmorði – þá er það þjóðarmorð!
Ólafur Ingólfsson skrifar

Vinnustaðir fatlaðs fólks
Atli Már Haraldsson skrifar

Þjónustustefna sveitarfélaga: Formsatriði eða mikilvægt stjórntæki?
Jón Hrói Finnsson skrifar

Blóð, sviti og tár
Jökull Jörgensen skrifar

Ertu knúin/n fram af verðugleika eða óverðugleika?
Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar

Er hægt að stjórna bæjarfélagi með óskhyggju?
Sigurþóra Bergsdóttir skrifar

Styrkleikar barna geta legið í öðru en að fá hæstu einkunnir
Anna Maria Jónsdóttir skrifar