Serena er ólétt og mun eignast sitt fysta barn síðar ár árinu. Rúmenska tenniskonan Simona Halep var spurð út í þessar fréttir á blaðamannafundi um helgina en þá heyrðist Nastase segja við sessunaut sinn:
„Við skulum sjá hvernig það verður á litinn. Ætli þetta verði ekki súkkulaði með mjólk,“ sagði hann en Serena er gift Alexis Ohanian, einum af stofnendum vefsíðunnar Reddit. Hann er hvítur.

Heldur áfram að berjast
Serena gerði ekkert í málinu fyrstu dagana en birti í gærkvöldi yfirlýsingu á Instagram-síðu sinni þar sem segir meðal annars:„Það hryggir mig að við búum í samfélagi þar sem fólk eins og Ilie Nastase getur sagt svona hluti sem eru bara kynþáttaníð. Ég hef sagt það áður og segir á ný að þó við séum komin mjög langt í þessum málefnum er langur vegur eftir.“
„Hvorki þetta né nokkuð annað mun aftra mér í að útdeila ást, ljósi og jákvæðni í allt sem ég geri. Ég mun halda áfram að vera leiðtogi og berjast fyrir því sem ég tel vera rétt,“ segir Serena Williams.
Síðustu dagar eru heldur betur búnir að vera skrautlegir hjá rúmenska rugludallinum Nastase því hann gerði sig að fífli í Fed-bikarnum um helgina.
Þar var hann úrskurðaður í bann frá öllum mótum á vegum Alþjóðatennissambandsins eftir að kalla Jo Kontu, bestu tenniskonu Breta, „helvítis tík“ í miðjum leik. Nastase var rekinn af svæðinu og í framhaldinu úrskurðaður í bann frá öllum mótum.