Kvikmyndahátíðin í Cannes stendur yfir þessa dagana og allar helstu stjörnurnar mættar í sínu fínasta pússi. Hár og förðun skiptir auðvitað lykilmáli fyrir heildarútlitið og því tók Glamour saman brot af því besta þessa fyrstu daga í Cannes.
Látlausir liðir, axlasítt hár, dögg augu og rauðleitar varir er það sem við erum búnar að sjá mest af á rauða dreglinum þetta árið.
Ofurfyrirsætan Emily Ratajowski falleg á rauða dreglinum með uppsett hár og dökka augnmálningu.
Bella Hadid glæsileg að vanda með svartan augnblýant, berjalitaðar varir og slegið hárið.
Ungstirnið Lily Rose Depp með liðað hár, dökka aunmálningu og ljósar varir.
Leikkonan fagra, Robin Wright geislaði í Cannes með hárið greitt til hliðar og náttúrulega förðun.
Franska leikkonan Marion Cotillard er alltaf falleg, hér er hún með lausa liði í hárinu, náttúrulegan farða og fallegan bleikan kinnalit.
Fyrirsætan vinsæla Hailey Baldwin með slétt axlarsítt hár á rauða dreglinum.
Viktoria Plzen
Manchester Utd