Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, vill fresta því að skipa dómara við Landsrétt. Hún situr í stjórnskipunar-og eftirlitsnefnd í stað Svandísar Svavarsdóttur, þingmanns Vinstri grænna, þar sem fyrrverandi eiginmaður Svandísar, Ástráður Haraldsson, er einn þeirra umsækjanda sem hæfnisnefnd mat hæfasta en hlutu ekki náð fyrir augum Sigríðar Á. Andersen, dómsmálaráðherra.
Stjórnskipunar-og eftirlitsnefnd fjallar nú um tillögu dómsmálaráðherra um skipan dómara við Landsrétt en fjórir af þeim sem ráðherra vill skipa í réttinn voru ekki metnir á meðal þeirra fimmtán hæfustu af hæfnisnefndinni.
Rætt var við þau Katrínu og Birgi Ármannsson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, í beinni útsendingu í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Þar kom fram að minnihlutinn í stjórnskipunar-og eftirlitsnefnd þingsins telji mikinn vafa leika á því að tillaga Sigríðar standist lög.
Katrín sagði að ráðherrann þyrfti að uppfylla ákveðna rannsóknarskyldu til að sýna fram á að þeir sem hún vilji skipa, þvert á mat hæfnisnefndar, séu hæfastir.
Þessi sjálfstæða rannsókn hefði ekki farið fram og sagði Katrín að þá þyrfti að fá nýtt mat frá dómnefndinni eða að skipa nýja dómnefnd. Þá væri eðlilegra ef vafi léki á því að málatilbúnaður nú héldi að fresta málinu svo hægt væri að vanda betur til verka.
Birgir sagði að sér litist illa á að fresta málinu og sagði þingið hafa þá skyldu að klára málið fyrir þinglok sem áætluð eru á morgun. Þá benti hann á að breyta þyrfti lögum ef það ætti að fresta málinu en samkvæmt dómstólalögum á ekki að skipa dómara við Landsrétt síðar en þann 1. júní, það er á fimmtudaginn.
Búist er við því að stjórnskipunar-og eftirlitsnefnd fundi um málið fram á kvöld og jafnvel á morgun en ljóst er að ágreiningur er í nefndinni milli meirihlutans og minnihlutans um hvernig afgreiða skuli tillögu dómsmálaráðherra.
Vill fresta skipan dómara við Landsrétt
Tengdar fréttir

Ráðherra sniðgekk fjórar tillögur hæfnisnefndar við skipan dómara
Arnfríður Einarsdóttir, héraðsdómari og eiginkona Brynjars Níelssonar, var ekki metin á meðal fimmtán hæfustu. Sigríður Á. Andersen skipaði hana þó dómara.

Sakar ráðherra um tilraun til ólögmætrar embættisfærslu í opnu bréfi til forseta Alþingis
Ástráður Haraldsson, hæstaréttarlögmaður og einn þeirra fimmtán umsækjenda sem hæfnisnefnd mat hæfasta til að taka sæti dómara við Landsrétt, segir Sigríði Á. Andersen, dómsmálaráðherra, gera tilraun til að afla sér heimildar Alþingis fyrir ólögmætri embættisfærslu með tillögu um skipan dómara við Landsrétt.

Hafnar ásökunum um ólögmætar embættisfærslur
Sigríður Á. Andersen hafnar því að hún leiti heimilda Alþingis til að framkvæmda ólögmæta embættisfærslu vegna skipana við Landsrétt.