Tillaga dómsmálaráðherra um skipun fimmtán dómara við Landsrétt var samþykkt á Alþingi nú rétt í þessu.
Tillagan var samþykkt með 31 atkvæðum stjórnarmeirihlutans gegn 22 atkvæðum minnihlutans. Átta greiddu ekki atkvæði. Brynjar Níelsson og Svandís Svavarsdóttir voru fjarverandi en Arnfríður Einarsdóttir, eiginkona Brynjars er ein þeirra sem kemur til greina sem dómari við Landsrétt. Barnsfaðir Svandísar, Ástráður Haraldsson, er einn þeirra sem var meðal tilnefndu.
Hún kvað á um að eftirtaldir verði skipaðir dómara við Landsrétt.
Aðalsteinn E. Jónasson, Arnfríður Einarsdóttir, Ásmundur Helgason, Davíð Þór Björgvinsson, Hervör Þorvaldsdóttir, Ingveldur Einarsdóttir, Jóhannes Sigurðsson, Jón Finnbjörnsson, Kristbjörg Stephensen, Oddný Mjöll Arnardóttir, Ragnheiður Bragadóttir, Ragnheiður Harðardóttir, Sigurður Tómas Magnússon, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, Þorgeir Ingi Njálsson.
Sjá einnig: Ráðherra sniðgekk fjórar tillögur hæfnisnefndar við skipan dómara
Hart hafði verið tekist um málið í þingsalnum í allan dag en minnihlutinn hefur sagt ákvörðun ráðherrans Sigríðar Á. Andersen um að skipa fjóra einstaklinga; tvær konur og tvo karla, sem ekki voru á lista hæfnisnefndar um þá fimmtán hæfustu til að gegna embætti dómara við Landsrétt, illa rökstudda.
Tillagan var afgreidd úr stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í gær þrátt fyrir að minnihlutinn hafi verið andvígur afgreiðslu málsins og hafi farið fram á að henni yrði vísað aftur til ráðherrans til frekari rökstuðnings.
Sjá einnig: Þau voru metin hæfust í dómarasætið
Píratar höfðu boðað fyrir atkvæðagreiðsluna að kæmi meirihlutinn til með að fella tillögu minnihlutans um að vísa málinu aftur til ráðherrans myndu þeir leggja fram vantrautstillögu á Sigríði.
Tillagan er tilbúin og standa Píratar einir að henni. Samkvæmt heimildum Vísis verður tillagan þó aldrei samþykkt; eins manns meirihluti stjórnarflokkanna mun halda komi hún fram.
