Gylfi Zoëga kemur fjármálaráðherra til varnar í Stóra-seðlamálinu

Gylfi gagnrýnir í greininni umræðuna sem myndaðist í þjóðfélaginu í kjölfar málsins. Ekki sé gerður greinarmunur á hugmyndinni sjálfri og þeim sem standi að baki henni. Hann gagnrýnir einnig að önnur hlið málsins hafi aðeins fengið athygli.
Hugmyndina um takmörkun seðla má, að sögn Gylfa, rekja til hagfræðinga sem hafi löngum stungið upp á því að afnema seðla og mynt til að lækka nafnvexti niður fyrir núll. Nafnvextir eru vextir af fjárfestingum, lánum og öðrum fjárhagslegum skuldbindingum. Talið var að lækkun nafnvaxta gæti haft áhrif á örvun hagkerfisins.
Gylfi segist skilja hugmynd Benedikts þar sem stóran hluta af hinu svarta hagkerfi megi rekja til notkun seðla. Svört starfsemi sé algeng hér á landi og telur Gylfi að skattsvik megi meðal annars rekja til erlends vinnuafls sem ekki sé skráð en einnig til smáfyrirtækja í ferðaþjónustu.
Hann telur að Benedikt eigi hrós skilið fyrir að koma fram með þessa hugmynd og telur að jafnvel hefði verið hægt að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um málið þannig að öll þjóðin gæti tekið raunverulega afstöðu til málsins.
Tengdar fréttir

Æsingurinn í Stóra-Seðlamálinu grundvallast á misskilningi
Jón Steinsson hagfræðingur segir ódýran greiðslumáta fylgja tillögunum um að afleggja fimm og tíu þúsund króna seðlana.

Lagt til að 10.000 og 5.000 krónu seðlar verði afnumdir
Talið er að um hundrað milljörðum sé komið undan skatti á Íslandi á hverju ári og segir fjármálaráðherra raunhæft að ná í stóran hluta þess fjár.

Þingmaður segir forræðishyggju að taka seðlana úr umferð
Seðlabankinn átti ekki fulltrúa í nefnd um að setja skorður við notkun reiðufjár. Samkvæmt lögum hefur bankinn það hlutverk að ákveða hvaða seðlar eru í umferð. Þingmaður gagnrýnir skort á samráði.

Stjórnvöld segja skattsvikurum stríð á hendur
Fjármálaráðherra segir vel hægt að ná til þeirra sem svíkja undan skatti með samræmdu átaki, meðal annars með því að minnka seðlamagn í umferð.

Benedikt segist vera búinn að læra sína lexíu eftir stóra seðlamálið
"Stóra markmiðið er baráttan gegn skattsvikum, gegn kennitöluflökkurum, gegn þessum skattaskjólseigendum þannig að við skulum ekki eyða tíma í það sem nefnt var í framhjáhlaupi,“ sagði Benedikt.

Fjármálaráðherra segir mikilvægt að sameinast gegn skattsvikum
Benedikt Jóhannesson telur að hægt sé að ná árangri í baráttunni við kennitöluflakk enda samstaða um þau mál milli aðila vinnumarkaðrins og almennings.