Aðalsteinn Ragnar Benediktsson, rekstrarstjóri Café París, segir í samtali við Vísi að maður í annarlegu ástandi beri ábyrgð á atvikinu.

Aðalsteinn segir að stólarnir hafi verið læstir með keðjum en manninum hafi á einhvern hátt tekist að losa þá.
„Hann var í einhverju annarlegu ástandi. Stólarnir eru læstir en hann náði einhvern veginn að vöðla þeim öllum saman, ég veit ekki alveg hvernig. Þetta gerðist bara í nótt,“segir Aðalsteinn.
Aðalsteinn segir að maðurinn hafi ekki látið þar við sitja heldur hafi hann einnig náð að festa hjól við stólafjallið.
„Það var eitt hjól þarna og hann var búinn að troða löppunum í gegnum pinnana þar,“ segir Aðalsteinn.
Aðalsteinn segist ekki taka þessu máli alvarlega; maðurinn hafi fært stóla og því hafi þeir bara fært þá til baka. Engir eftirmálar verði af atvikinu enda hafi enginn stóll eyðilagst.
Hann segir þó að atvikið hafi leitt til þess að þeir muni líklega kaupa sterkari keðjur til að festa stólana þannig að framtíðar stólaverkfræðingar fari ekki að taka upp á þessu í bríaríi.