

Tómas á lágu plani
Þarna er dylgjað um óheiðarleika og undirmál. Þeir sem verða fyrir dylgjunum eru framkvæmdaaðilarnir að virkjuninni, verkefnisstjórnin um Rammaáætlun, ráðherrarnir sem lagt hafa málið fyrir Alþingi og alþingismenn. Til þess að lauma röngum virkjunaráformum í gegnum Alþingi þarf samsæri allra þessara aðila. Þrátt fyrir framkomnar áskoranir um rökstuðning hefur Tómas ekki rökstutt mál sitt. Það mun seint verða því fullyrðingarnar eru allar rangar og dylgjurnar tilhæfulausar.
Skýrslan frá 2007
Gögnin sem varða Hvalárvirkjun og Rammaáætlun eru öll opinber og eru til frá upphafi. Hver sem er getur kynnt sér þau. Upphafið er í skýrslu Almennu verkfræðistofunnar frá 2007 sem unnin er fyrir Orkustofnun. Þar strax er kynnt að nýting vatns úr Eyvindarfjarðará sé ráðgerð til viðbótar vatni úr Hvalá og Rjúkanda. Þetta er enn svo, þó með jarðgöngum og öðrum breytingum sem ætlaðar eru til þess að draga úr umhverfisáhrifum. Þessi virkjunaráform hafa tvisvar farið í gegn um verkferla Rammaáætlunar og verið kynnt almenningi og umsagnir fengnar frá hverjum þeim sem þær vildi senda.
Tvisvar hefur verkefnisstjórnin lagt til að Hvalárvirkjun verði í nýtingarflokki og Alþingi hefur fallist á það í fyrra sinnið ágreiningslaust að því er best verður séð í þingtíðindum, en seinni tillagan að Rammaáætlun er enn til meðferðar á Alþingi. Afl virkjunarinnar hefur aukist. Það var fyrst áætlað 35 MW og 259 GWh en er núna 55 MW og 320 GWh. Það er vegna þess að vatnið er nú talið meira en áður en ekki vegna breytinga á virkjuninni. Bæði verkefnisstjórnin og ráðherra segja breytingar á Hvalárvirkjun óverulegar milli áætlana. Þegar Landvernd gefur umsögn sína um Hvalárvirkjun vitna samtökin í skýrsluna frá 2007 sem sýnir að samtökunum var kunnugt um hana.
Enginn sem kemur að málinu tekur undir ásakanir og dylgjur Tómasar. Það var enginn blekktur. Engu var laumað í gegn. Eini úlfurinn í sauðargæru sem orðið hefur vart við er Tómas Guðbjartsson sjálfur. Tímabært er að hann komi undan gærunni og skýri hvað honum gengur til.
Höfundur er fyrrverandi alþingismaður.
Skoðun

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar

Börn í skugga stríðs
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Gunnar Örn Vopnfjörð Þorsteinsson skrifar

Hvernig gerum við Grundarhverfi enn betra?
Ævar Harðarson skrifar

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar

Af hverju er Framsóknarfólk hamingjusamast?
Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar

Norska leiðin hefur gefist vel – í Póllandi
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Opið hús fyrir útvalda
Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar

Af hverju hræðist fólk kynjafræði?
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hlustum á okkar landsliðskonur - sýnum Ísrael rauða spjaldið
Hrönn G. Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar

Hópnauðganir/svartheimar!
Davíð Bergmann skrifar

Valdið og samvinnuhugsjónin
Kjartan Helgi Ólafsson skrifar

NPA breytti lífinu mínu
Sveinbjörn Eggertsson skrifar

Hefur þú tilkynnt um ofbeldi gegn barni?
Alfa Jóhannsdóttir skrifar

Gildi kærleika og mannúðar
Toshiki Toma skrifar

Hvernig tryggjum við samkeppnishæfni þjóðar?
Jón Skafti Gestsson skrifar

Í minningu Frans páfa - sem tók sér nafn verndardýrlings dýra og náttúru
Árni Stefán Árnason skrifar

Flottu kjötauglýsingarnar í blöðunum...
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Grafarvogsgremjan
Þorlákur Axel Jónsson skrifar

Er ég að svindla? – Um sambýli manns og gervigreindar í sköpun og þekkingu
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Fjármögnuðu stríðsvél Rússlands
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hugleiðingar á páskum
Ámundi Loftsson skrifar

Gremjan í Grafarvogi
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Samlokan á borðinu: Hugleiðingar á föstudeginn langaum sjónvarpsþættina Adolescence
Skúli Ólafsson skrifar

Móttaka skemmtiferðaskipa - hlustað á íbúa
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar