KR-ingar skoruðu ekki á heimavelli eftir 31. júlí Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. október 2017 23:00 Óskar Örn Hauksson skoraði síðasta mark KR á heimavelli í sumar. Vísir/Anton Brink
Markaleysi KR-inga á heimavelli er örugglega ein aðalástæðan fyrir því að KR verður ekki í Evrópukeppninni á næsta tímabili. KR endaði í 4. sæti Pepsi-deildarinnar en Valur, Stjarnan og FH komust í Evrópukeppnina. Það verður örugglega í forgangi að laga þetta hjá nýjum þjálfara KR-liðsins, Rúnari Kristinssyni. Óskar Örn Hauksson skoraði síðasta mark KR-inga á heimavelli í sumar þegar hann gulltryggði 4-2 sigur á Ólafsvíkingum 31. júlí síðastliðinn. KR tókst ekki að skora á heimavelli síðustu 60 daga Íslandsmótsins. KR tapaði 1-0 á móti Stjörnunni á Alvogenvellinum um helgina og var það fjórði markalausi heimaleikur KR-liðsins í röð. KR lék síðustu 365 mínúturnar á KR-vellinum í sumar án þess að ná að skora og mótherjar liðsins skoruðu fjögur síðustu mörkin sem voru skoruð á KR-vellinum tímabilið 2017. KR skoraði alls 12 mörk í síðasta heimaleiknum sumrin 2016 (3), 2015 (5) og 2014 (4) en Vesturbæjarliðið hafði skorað tvö mörk eða fleiri í síðasta heimaleik sumarsins undanfarin níu tímabil. Það voru liðin fjórtán ár síðan KR-liðinu tókst ekki að skora í síðasta heimaleiknum (2003) og var Willum Þór Þórsson þá einnig þjálfari. KR-ingar tóku við Íslandsbikarnum eftir þann leik. Ennfremur voru liðin 27 ár síðan að KR náði ekki að skora í síðustu tveimur heimaleikjum sínum (1980) en þetta í fyrsta sinn í nútímafótbolta (frá 1977) sem KR skorar ekki síðustu fjórum heimaleikjum sínum. KR-liðið náði aðeins í 4 stig af 27 mögulegum á heimavelli á móti níu efstu liðunum í deildinni en vann alla þrjá heimaleiki sína á móti neðstu liðunum.Heimaleikir KR-liðsins á móti efstu 9 liðunum í sumar: 1-2 tap fyrir Víkingi R. 2-2 jafntefli við FH 0-1 tap fyrir Grindavík 1-1 jafntefli við Breiðablik 0-0 jafntefli við Val 0-3 tap fyrir ÍBV 0-0 jafntefli við KA 0-1 tap fyrir Stjörnunni4 stig af 27 mögulegum (15 prósent)-6 í markatölu4 mörk skoruð10 mörk fengin á sigHeimaleikir KR-liðsins á móti neðstu 3 liðunum í sumar: 2-1 sigur á ÍA 2-0 sigur á Fjölni 4-2 sigur á Víkingi Ó.9 stig af 9 mögulegum (100 prósent)+5 í markatölu8 mörk skoruð3 mörk fengin á sig
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Gagnrýnir HSÍ harðlega: „Enginn metnaður til að gera betur“ Handbolti Bjarki um gjaldþrotið: „Þú ert niðurlægður á ákveðinn hátt“ Íslenski boltinn Pabbi Haliburtons ögraði Giannis: „Mikil vanvirðing“ Körfubolti Enginn ákærður vegna andláts Adam Johnson Sport Stúkan um Stjörnuna: „Er algjört kjaftæði“ Íslenski boltinn „Held að Víkingar hafi keypt rangan framherja úr HK“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 105-104 | Lygilegar lokamínútur Körfubolti Sigtryggur Arnar eignaðist strák rétt fyrir stórleik kvöldsins Körfubolti ITV styður Ian Wright og gæti losað sig við Eni Aluko Enski boltinn Ten Hag líklegur til að taka við af Alonso Fótbolti Fleiri fréttir „Held að Víkingar hafi keypt rangan framherja úr HK“ Bjarki um gjaldþrotið: „Þú ert niðurlægður á ákveðinn hátt“ Stúkan um Stjörnuna: „Er algjört kjaftæði“ Arnór Borg í Vestra og Fram fann markmann Víkingur fær leikmann úr dönsku B-deildinni „Fannst við halda góðri stjórn á leiknum“ Uppgjörið: Breiðablik - Fram 7-1 | Upprúllun í Kópavogi Uppgjörið: Víkingur R. - Þróttur R. 0-1 | Óheppilegt sjálfsmark skilaði gestunum sigri Hin þaulreynda Anna Björk heim í KR Henríetta lánuð til Þór/KA Aftur heim í Stjörnuna eftir dvöl hjá FH Gylfi valdið mestum vonbrigðum Telma mætt aftur með gullhanskann í Breiðablik Fagnaði tvítugsafmæli í gær og lánaður til FH í dag Stærsti sigur KR á ÍA í deildarleik Sannfærðir um að FH verði í fallbaráttu „Jæja Heimir, þú verður að hjálpa mér að enda þetta vel“ Sjáðu vítin á Hlíðarenda, skrautleg mörk í Garðabæ og umdeilt mark Fram TikTok-stjarna ÍBV dælir út efni frá Eyjum „Þetta var erfitt og maður var aldrei rólegur“ Vilja Gylfa Þór ekki til baka: „Enginn skilaréttur“ „Ekki áhyggjuefni, þetta var bara hörkuleikur“ Uppgjörið: Fram - Afturelding 3-0 | Mosfellingum kippt niður á jörðina Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-1 | Jafntefli sanngjarnt þegar hvorugt lið sækir til sigurs Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 2-3 | Gott gengi Eyjamanna heldur áfram Dagur Örn sagður á leið til FH Sjáðu mörkin: Endurkoma Stjörnunnar og mörkin hjá Val og FH Sjáðu markaveislu KR og rothögg KA gegn FH „Kom bara í hörkustandi inn í þennan leik“ Uppgjörið: Valur - Þór/KA 3-0| Valur kláraði dæmið í síðari hálfleik Sjá meira