Enski boltinn

ITV styður Ian Wright og gæti losað sig við Eni Aluko

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Eni Aluko og Ian Wright að störfum fyrir ITV.
Eni Aluko og Ian Wright að störfum fyrir ITV. getty/Charlotte Wilson

Svo virðist sem Eni Aluko hafi gert sjálfsmark þegar hún gagnrýndi Ian Wright fyrir að taka of mikið pláss í umfjöllun um kvennafótbolta.

Í síðustu viku gagnrýndi Aluko Wright fyrir að vera of fyrirferðamikinn í umfjöllun um kvennafótbolta og það takmarkaði möguleika kvenna á því sviði.

Ummæli Alukos mæltust almennt ekki vel fyrir og hún sá sig knúna til að biðjast afsökunar á þeim á föstudaginn. Daginn eftir sagðist Wright ekki geta samþykkt afsökunarbeiðnina.

Aluko og Wright þekkjast vel og hafa fjallað saman um landsleiki Englands, bæði karla og kvenna, á ITV. Wright þarf ekki að hafa áhyggjur af sínu starfi hjá ITV, ef marka má ummæli talsmanns stöðvarinnar, en öðru máli virðist gilda um Aluko.

„Staða Ians í fótboltanum er óumdeild. Sem einn af virtustu og dáðustu fótbolta- og sjónvarpsmönnum Bretlands, með næstum því fjögurra áratuga feril, er Ian ótrúlegur málsvari og frábær í að fjalla um kvennafótbolta frá grasrótinni upp á hæsta getustig,“ sagði talsmaður ITV.

Framundan er stórt sumar hjá ITV en stöðin sýnir leiki enska karlalandsliðsins í undankeppni HM í júní og er svo með hálfan sýningarrétt á EM kvenna í Sviss. Ljóst er að Wright verður hluti af teymi ITV sem fjallar um þessa leiki en öllu meiri óvissa ríkis um framtíð Alukos. Breskir fjölmiðlar greina frá því að stjórnendur ITV íhugi hreinlega að láta Aluko róa.

Aluko hefur staðið í ströngu að undanförnu en hún kærði Joey Barton fyrir hatursorðræðu í sinn garð á X. Aluko sagði að það hefði haft mikil áhrif á sig og hún hafi aldrei fengið jafn lítið að gera við umfjöllun um fótbolta og síðan hún hóf að berjast við Barton.

Aluko spilaði 105 landsleiki fyrir England á árunum 2004-16 og skoraði 33 mörk. Hún lagði skóna á hilluna fyrir sex árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×