Kvikmyndaframleiðandinn Harvey Weinstein hefur verið rekinn úr bandarísku kvikmyndaakademíunni, sem meðal annars úthlutar Óskarsverðlaununum ár, hvert. Var þetta ákveðið á neyðarfundi stjórnar akademíunnar í dag þar sem meirihluti kaus með þeirri ákvörðun að reka Weinstein.
Nokkrar stjörnur hafa tjáð sig opinberlega um þessar fréttir á Twitter.
Þar á meðal Bill Prady, framleiðandi þáttaraðarinnar The Big Bang Theory, sem líkir Weinstein við forseta Bandaríkjanna, Donald Trump. Hann segir muninn á þeim tveimur vera að akademían ákvað að kjósa Weinstein burt, en bandarískir kjósendur völdu Trump í embættið.
Here's the difference: the movie academy voted Weinstein out. The GOP voted Trump in.
— Bill Prady (@billprady) October 14, 2017
Leikkonan Emmy Rossum, úr þáttaröðinni Shameless, lýsti yfir ánægju sinni með þessa ákvörðun á einfaldan hátt:
Amen, the academy!!!
— Emmy Rossum (@emmyrossum) October 14, 2017
Leikarinn Josh Gad, sem ljáði snjókarlinum Ólafi úr Disney-myndinni Frozen, spyr einfaldlega hvað eigi að gera við Donald Trump fyrst að búið sé að útkljá málefni Weinsteins opinberlega.
So now that we've dealt with Weinstein what are we going to do about Trump?
— Josh Gad (@joshgad) October 14, 2017
Leikkonan Mia farrow segist vonast til þess að þessi ákvörðun akademíunnar marki endalok hörmulegs tímabils í Hollywood. Sonur hennar, Ronan Farrow, vann umfjöllun um Weinstein-málið í tíu mánuði fyrir tímaritið The New Yorker.
Proud of the @TheAcademy! Harvey Weinstein is out. There are others- but hopefully we are witnessing the end of an awful era.
— Mia Farrow (@MiaFarrow) October 14, 2017
Leikarinn Ron Perlman segist stoltur af ákvörðun akademíunnar, verandi meðlimur í henni sjálfur. Akademían telur í það heila um 8.400 meðlimi.
As a member of the Academy of Motion Picture Arts and Sciences I am proud of their decision to expel Harvey Weinstein.
— Ron Perlman (@perlmutations) October 14, 2017
Leikarinn Rene Auberjonois segir að fyrst að akademían hafi tekið þessa ákvörðun, þá sé kominn tími á að bandaríski þingið geri eitthvað í forseta Bandaríkjanna.
Now that the Academy has acted, it's time for Congress to step up and remove the Predator in Chief
— Rene Auberjonois (@reneauberjonois) October 14, 2017
Fjölmiðlamaðurinn Piers Morgan bendir á að leikstjórinn Roman Polanski sé enn meðlimur í akademíunni þrátt fyrir að hafa játað kynferðisbrot gegn barni.
BREAKING: Oscars Academy expels Harvey Weinstein over 'sexually predatory behaviour'.
— Piers Morgan (@piersmorgan) October 14, 2017
* Child rapist Roman Polanski remains a member. pic.twitter.com/fRlzcXYaZp