Merkel bjartsýn þrátt fyrir erfiðar viðræður Atli Ísleifsson skrifar 3. nóvember 2017 12:31 Enn er reynt að mynda ríkisstjórn í Þýskalandi. Vísir/AFP
Angela Merkel Þýskalandskanslari telur enn að stjórnarmyndunarviðræður Kristilegra demókrata, Frjálslynda flokksins og Græningja muni skila árangri. Reuters hefur eftir Merkel að hún telji enn að hægt verði að ná saman, en viðræður halda áfram í höfuðborginni Berlín í dag. Málaflokkarnir sem helst hefur verið deilt um í viðræðunum eru málefni innflytjenda og loftslagsmál, en CSU, bæverskur systurflukkur CDU, flokks Merkel, og Græningjar líta loftslagsmálin mjög ólíkum augum. Svokölluð „Jamaíkustjórn“ hefur aldrei áður starfað saman á landsvísu í Þýskalandi. Hefð er fyrir því í Þýskalandi að nefna stjórnir eftir löndum. Eru þá einkennislitir viðkomandi flokka heimfærðir upp á fánaliti einhvers lands. Einkennislitur Kristilegra demókrata er svartur, Græningja grænn og Frjálslynda flokksins gulur. Ákveðið var að reyna myndun slíkrar stjórnar eftir að stjórnarflokkarnir Kristilegir demókratar (CDU og CSU) og Jafnaðarmenn (SPD) misstu mikið fylgi í konsningunum í september og hægri popúlistaflokkurinn AfD náði í fyrsta sinn mönnum á þýska þingið.
Kosningar í Þýskalandi Þýskaland Mest lesið Ekki allir sammála um magn jólaskreytinga eða litaval Innlent Hægri hönd Selenskís kynnist Trump-liðum Erlent Háskólafólk mótmælir gjaldtöku á nemendur utan EES Innlent Launmorð á götum New York Erlent Konfektið í hæstu hæðum Innlent Þessi voru oftast strikuð út í Reykjavík Innlent Bankarnir of bráðir í vaxtahækkunum Innlent Auðjöfur og einkageimfari mun stýra NASA Erlent Plötusnúður fagnar sigri gegn Reyni Traustasyni Innlent Rútuslys austan við Hala í Suðursveit Innlent Fleiri fréttir Hægri hönd Selenskís kynnist Trump-liðum Auðjöfur og einkageimfari mun stýra NASA Franska ríkisstjórnin fallin Ákæra forsetann formlega vegna herlaga Launmorð á götum New York Combs kærður fyrir að hafa látið konu hanga fram af svölum Mega ekki lengur leggja stund á hjúkrunar- og ljósmóðurfræði Leggja drög að ákæru á hendur forsetanum Krefjast niðurfellingar í þöggunarmálinu Herlögin loks felld úr gildi Sækja að annarri stórri borg í Sýrlandi Óvissa þrátt fyrir að þingið hafi fellt neyðarlögin úr gildi Lýsir yfir herlögum í Suður-Kóreu Engin greinarmunur gerður á Líbanon og Hezbollah ef friðurinn heldur ekki Rannsaka ekki ljósleiðaraskemmdir sem sakamál ennþá Stefnir í vantraust og aðra stjórnarkreppu Skorið á ljósleiðara í Finnlandi Hafnar því að þurfa að velja á milli Bandaríkjanna og Evrópu Fordæmalaus náðun Bidens Mörg hundruð vígamenn frá Írak til aðstoðar Assad-liðum Vilja vara aðra við örlögum dóttur sinnar í Laos Játar að hafa ekki afl til að taka aftur hernumdu svæðin Ríkisstjórnin og Barnier í hættu vegna fjárlaga Biden náðar son sinn Kynlífsverkafólk í Belgíu á nú rétt á fæðingarorlofi og lífeyri Ungur maður særði tvennt í skotárás á Grænlandi Hafa náð tökum á hálfri Aleppo og fjölda þorpa Assad-liðar gefa hratt eftir í Aleppo Síðasta heimsókn forseta fyrir opnun Notre Dame Tjadar og Senegalar segja Frökkum að koma sér Sjá meira