
Stilling klukkunnar
Þegar stillingu klukkunnar var breytt með lagasetningu árið 1968 hafði um áratuga skeið verið farin sú leið að flýta klukkunni á sumrin en seinka henni aftur á veturna. Þetta hringl með klukkuna, eins og það var kallað, hafði mörgum þótt óþægilegt, og kvartanir í lesendabréfum dagblaðanna voru árviss viðburður. Markmiðið með lagasetningunni var fyrst og fremst það að koma á föstum tíma allt árið. Eftir vandlega athugun var ákveðið að klukkur skyldu stilltar eftir flýttri klukku, miðtíma Greenwich.
Röksemdirnar sem nefndar voru í greinargerð með frumvarpinu voru í stuttu máli þessar: (1) að flýtta klukkan gilti þá þegar meira en helming ársins, (2) að sú klukka samsvaraði „heimstíma“ sem hafður væri til viðmiðunar í margs konar alþjóðlegum viðskiptum, (3) að breytingin myndi færa Ísland nær meginlandi Evrópu í tíma og (4) dagsbirtan myndi nýtast betur því að myrkurstundum á vökutíma myndi fækka. Neikvæð áhrif voru að sjálfsögðu nefnd. Þótt þess væri ekki getið í greinargerðinni, hafði takmörkuð skoðanakönnun meðal forsvarsmanna stofnana, fyrirtækja, skóla og félagasamtaka bent til þess að flestir væru hlynntari flýttri klukku.
Í meira en tuttugu ár eftir lagasetninguna heyrðust engar kvartanir frá almenningi. Það er ekki fyrr en á síðari árum að komið hafa fram raddir sem kalla á breytingu. Má þar nefna þingsályktunartillögu árið 1994, frumvarp árið 1995 (endurflutt 1998 og 2000) og þingsályktunartillögur árin 2006, 2010, 2013 og 2014. Fram til ársins 2010 gengu tillögur þingmanna í þá átt að flýta klukkunni enn frekar en nú er gert, nánar tiltekið yfir sumarið. Tillögurnar 2013 og 2014 gengu hins vegar í gagnstæða átt, þ.e. flutningsmenn vildu seinka klukkunni, a.m.k. yfir veturinn. Öllum þessum frumvörpum og tillögum eru gerð skil á vefsíðu Almanaks Háskólans:
https://www.almanak.hi.is/timreikn.html
Að tillögurnar skyldu ganga í ólíkar áttir sýnir glöggt að engin lagasetning getur sætt öll sjónarmið. Síðustu þingsályktunartillögurnar hnigu að því að klukkunni skyldi seinkað. Eftirfarandi umfjöllun á því erindi til almennings nú þegar hið sama er til umræðu.
https://www.almanak.hi.is/seinkun3.html
Ég vil eindregið ráðleggja þeim sem hafa áhuga á þessu máli að kynna sér vandlega ofangreind gögn. Stilling klukkunnar er mál sem snertir alla landsmenn. Breytingar geta haft margvísleg áhrif, og þau eru ekki alltaf augljós.
Höfundur er stjörnufræðingur.
Skoðun

Næringarfræði er lykillinn að betri heilsu, viltu vera með?
Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar

Löngu þarft samtal um hóp sem gleymist!
Katarzyna Kubiś skrifar

Menntun fyrir öll – nema okkur
Haukur Guðmundsson skrifar

Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika
Davíð Bergmann skrifar

Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Að sækja gullið (okkar)
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Til hamingju blaðamenn!
Hjálmar Jónsson skrifar

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar

Börn í skugga stríðs
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Gunnar Örn Vopnfjörð Þorsteinsson skrifar

Hvernig gerum við Grundarhverfi enn betra?
Ævar Harðarson skrifar

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar

Af hverju er Framsóknarfólk hamingjusamast?
Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar

Norska leiðin hefur gefist vel – í Póllandi
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Opið hús fyrir útvalda
Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar

Af hverju hræðist fólk kynjafræði?
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hlustum á okkar landsliðskonur - sýnum Ísrael rauða spjaldið
Hrönn G. Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar

Hópnauðganir/svartheimar!
Davíð Bergmann skrifar

Valdið og samvinnuhugsjónin
Kjartan Helgi Ólafsson skrifar

NPA breytti lífinu mínu
Sveinbjörn Eggertsson skrifar

Hefur þú tilkynnt um ofbeldi gegn barni?
Alfa Jóhannsdóttir skrifar

Gildi kærleika og mannúðar
Toshiki Toma skrifar

Hvernig tryggjum við samkeppnishæfni þjóðar?
Jón Skafti Gestsson skrifar

Í minningu Frans páfa - sem tók sér nafn verndardýrlings dýra og náttúru
Árni Stefán Árnason skrifar

Flottu kjötauglýsingarnar í blöðunum...
Ole Anton Bieltvedt skrifar