En hvað þýðir haute couture?
Haute couture, eða hátíska, er í raun sérsaumaðar og klæðskerasniðnar flíkur sem eru handgerðar frá upphafi til enda fyrir kúnnana. Öll smáatriði eru unnin í höndunum af faglærðu fólki og mikið lagt upp úr því. Efnin eru í bestu mögulegu gæðum og verðmiðinn á lokaútkomunni skiptir engu máli. Það er ekki á færi allra tískuhúsa að geta skreytt sig með haute couture stimplinum en til þess að geta tekið þátt í hátískunni þurfa tískuhúsin að uppfylla eftirfarandi skilyrði hér, sem voru ákveðin í París árið 1945:
- Að sérsauma flíkur gegn pöntunum fyrir viðskiptavini.
- Starfrækja vinnustofu (atelier) í París með að minnsta kosti 15 starfsmönnum í fullu starfi.
- Vera með að minnsta kosti 20 starfsmenn sem sérhæfa sig í tæknilegri vinnu á vinnustofunni (atelier).
- Sýna fatalínu með að minnsta kosti 50 flíkum tvisvar á ári (í janúar og júní) og að það sé blanda af kvöldklæðnaði og hvers- dagsfatnaði.
Hér eru nokkrar skemmtilegar myndir í frá vinnustofum í París gegnum tíðina.