„Fyrsti míní-tónleikatúrinn verður í Sviss, af öllum stöðum. Við fengum gigg þar fyrir einhverju síðan sem er að vinda upp á sig. Fyrstu tóleikarnir verða í maí,“ segir Ragna.
„Ég ákvað loksins að skella í plötu. Hún kemur vonandi út í sumar en síðast gaf ég út plötu 2013. Í millitíðinni var ég upptekin í því að fjölga mannkyninu. Ég hef verið að koma mér aftur í gírinn og spila nýtt efni í haust og því fylgja blendnar tilfinningar. Það er bæði spennandi og taugatrekkjandi að flytja nýtt.“
Ragna geystist fyrst inn á rappsenuna seint á tíunda áratugnum þegar hljómsveit hennar Subterranean var valin bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum árð 1997. Subterranean naut mikilla vinsælda og hitaði meðal annars upp fyrir Fugees í Laugardalshöll.
„Það var toppurinn. Frekar stórt fyrir 17 ára krakka og lifir sterkt í minningunni,“ segir Ragna. „Það er varla hægt að biðja um meira, að vera svona ungur í hljómsveit og njóta velgengni. Ég sakna þess þó bara passlega og á hollan hátt. Þetta setti dálítið óraunsæjan standard á hvert maður ætlaði sem fullorðinn tónlistarmaður. Viðmiðið var að gefa bara út og það myndi alltaf ganga vel, en það er ekkert sjálfsagt. Það er ekkert gefið í þessum bransa,“ Ragna. Hún fékk smávegis nasasjón af glamúrlífi tónlistarbransans þegar hún vann sem lærlingur í hljóðveri í New York.

Stelpur eiga erfiðara uppdráttar
Ragna hefur þó ekki setið auðum höndum og kom síðast fram á sviði hér heima í janúar á Puzzy Patrol tónleikunum sem fram fóru í Gamla Bíói.„Þar kom fram hríðskotalið kvenna í rappi. Þetta voru frábærir tónleikar en ég hefði viljað sjá fleiri mæta,“ segir Ragna. Fjöldi gesta hafi þó ekki endilega komið á óvart. „Stelpur eiga erfitt uppdráttar í tónlist yfir höfuð myndi ég segja. Þannig liggur landslagið, allavega í rappinu og það er ekkert nýtt fyrir mér. En það er vonandi að breytast. Ég man til dæmis ekki eftir öðrum stelpum að rappa þegar ég var að byrja. Ég var samt ekkert að spá í það þá og í raun spái ég bara í tónlist fyrir það sem hún er. Til að tengja við tónlist sem aðrir eru að gera finnst mér lykilatriði að fólk hafi áhuga og ástríðu fyrir tónlistinni,“ segir hún.
Á nýju plötunni mun hún fá til liðs við sig valinkunnar söngkonur en segir það ekki hafa verið meðvitaða „girl power“ ákvörðun. „Nei, alls ekki, þetta var í raun bara skemmtilegt samstarf sem vatt upp á sig og nú er ég í sambandi við alls konar flottar íslenskar söngkonur. Þetta er nýtt fyrir mér og er alveg ótrúlega skemmtilegt,“ segir Ragna og þvertekur fyrir að vera reiður rappari sem þurfi að koma skilaboðum út gegnum tónlistina. Fjölskyldulífið hafi tekið yfir.

Hangir á bílasölum um helgar
„Hvert lag á plötunni snýst bara um stemminguna þann daginn. Ég reyni að pæla ekki of mikið í þessu. Það vex mér í augum að reyna að hugsa plötuna sem einhverja heild. Ég tek bara einn dag í einu. Í fullri vinnu og með fjölskyldu hef ég bara kvöldin og stöku helgar í tónlistina,“ segir Ragna en fjölskyldan telur fjóra, eiginmann og tvö börn, átta ára og eins og hálfs árs. Ragna segir það passlegan fjölda enda krakkarnir á fjörugum aldri.„Um helgar reynum við oft að glugga í blöðin og leita uppi eitthvað til að gera saman. Opið hús hjá bílasölunum er oft vinsælt, þar er eitthvað fyrir alla. Kallinn fær að prufukeyra nýja bíla og krakkarnir fá pulsu og blöðru og allir sáttir. Ég fæ bara að njóta þess að horfa á alla glaða,“ segir hún hlæjandi.
Tekurðu tónlistarlegt uppeldi krakkanna alvarlega?
„Ég ræð því sem spilað er í bílnum en ætli aðal mótunin sé ekki um unglingsárin. Það á því eftir að koma í ljós hvort mér tekst að hafa einhver áhrif á þau,“ segir Ragna. Hún fagni því hversu vinsælt rapp sé orðið hjá yngstu kynslóðinni.
Sköpunarkrafturinn mikill
„Rappið er popp nútímans. Það er gaman að sjá stefnuna vaxa svona mikið og hvernig íslenskir tónlistarmenn móta hana eftir sínu höfði. Þessir krakkar verða fyrir áhrifum héðan og þaðan en hafa samt sinn stíl í rappinu. Það kemur með tungumálinu og hrynjandanum. Rapp þekktist til dæmis ekki á íslensku þegar við vorum að byrja og við leituðum auðvitað bara í það sem við þekktum, amerískt rapp. Umhverfið hefur breyst mjög mikið. Tónlist er mun aðgengilegri núna og krakkar eiga miklu auðveldara með að afla sér upplýsinga og leita áhrifa gegnum netið. Það er líka orðið miklu auðveldara að búa til tónlistarmyndband. Í dag er það á færi nánast hvers sem er en þegar við vorum að byrja var það meiriháttar mál. Sköpunarkrafturinn er mikill og í raun ekkert sem aftrar krökkum frá að gera allt sjálf.“Ert þú orðin fyrirmynd ungra tónlistarmanna?
„Ég veit það ekki en ég vona það. Ég held reyndar að margir tónlistarmenn séu einhvers konar fyrirmynd, hvort sem þeir kæra sig um það eða ekki. Maður reynir alltaf að vanda sig í því sem maður er að gera og að hafa jákvæð áhrif út á við.“