Leikkonan Margot Robbie er búin að vera ansi mikið í sviðsljósinu undanfarna mánuði í kjölfarið á velgengni kvikmyndarinnar I Tonya. Rauði dregillinn er hennar og götutíska leikkonunnar ekki síðri.
Það er sko vel hægt að fá innblástur frá fatasmekk Robbie sem blandar saman flíkum á skemmtilegan en afslappaðan máta. Hún er einmitt tilnefnd til Óskarsverðlauna og við hlökkum til að sjá hverju hún ákveður að klæðast á þessum stærsta rauða dregli ársins.
Minna er meira. Svartur rúllukragi við hvítt gallapils og snákaskinnsstígvel sem setja punktinn yfir i-ið.
Blómakjóll. Ef þú ert ekki búin að fjárfesta í einum slíkum fyrir vorið og sumarið en rétti tíminn til að huga að því núna. Stendur alltaf fyrir sínu.
Það er eitthvað í að við getum verið berleggja hér en blár skyrtukjóll við brúna sandala er skothelt kombó.
Chanel - legt dress sem stendur fyrir sínu á rauða dreglinum. Takið eftir töskunni sem virðist sérsniðið fyrir síma, frá Chanel að sjálfsögðu.
Berar axlir er heitt trend fyrir komandi sumar. Þessi svarti kjóll er sumarlegur en töff á sama tíma.
Blómakjóll án þess að vera of væminn. Þar spilar taskan, kanínan, stórt hlutverk.