Markle hafði vandað fatavalið af þessu tilefni og klæddist síðri grænköflóttri ullarkápu í stóru sniði frá breska tískuhúsinu Burberry. Þá var hún í dragsíðum buxum með víðum skálmum og með flöskugræna leðurtösku.
Stórar yfirhafnir eru trend sem þessi tilvonandi prinsessa hefur tileinkað sér á smekklegan máta.


