

Kraftaverk
Slík kraftaverk eru hvorki sjálfsprottin né þrautalaus enda koma fjölmargir að því að búa til kvikmynd. Koma að því að segja sögu í þessum skemmtilega miðli og í þessu er allt það besta í íslenska kvikmyndavorinu fólgið: Hæfileikum, fagmennsku og góðri sögu. Sagan sem býr í handritinu er kjarninn sem unnið er út frá og snilld leikstjórans er oft fólgin í að raða saman rétta fólkinu til þess að segja þessa sögu.
Það er því full ástæða til þess að taka undir kröfu Margrétar Örnólfsdóttur, formanns Félags leikskálda og handritshöfunda (FLH), um að fulltrúi félagsins fái sæti í Kvikmyndaráði. Tilefnið er frumvarpsdrög að breytingum á kvikmyndalögum en ráðið hefur það hlutverk að veita stjórnvöldum ráðgjöf og gera tillögur um stefnu og markmið á sviði kvikmyndalistar. Handritshöfundar leggja einnig til að setutímabil ráðgjafa Kvikmyndamiðstöðvar Íslands verði stytt en dæmi eru um að þeir hafi setið í meira en áratug, eins og reyndar Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður miðstöðvarinnar.
Þó að reynsla geti verið af hinu góða þá er þarna augljós hætta á einsleitni, ekki síst sökum þess hversu margir eru um lítið í þessum geira, og því bráðnauðsynlegt að gera bragarbót á sem allra fyrst. Einsleitni í íslenskri kvikmyndagerð hefur í gegnum tíðina ekki síst birst í gríðarlegri kynjamismunun, þar sem konur hafa einungis leikstýrt 6% af íslenskum kvikmyndum frá árinu 2010 en eru þó ríflega helmingur þjóðarinnar. Á tíunda áratugnum var hlutfallið 21% þannig að svo virðist sem við stöndum frammi fyrir einhvers konar öfugþróun í þessum efnum.
Laufey var í viðtali í þættinum Morgunvaktinni fyrir skömmu og setti fram ágætar hugmyndir um markvissa aðgerðaáætlun til þess að bæta hlut kvenna í kvikmyndum. En það er öllu verra að hún skyldi staðhæfa að færri vilji sjá kvikmyndir eftir konur og að það sé erfiðara að markaðssetja verk þeirra. Hlutur kvenna í íslenskri kvikmyndagerð hefur reyndar verið svo rýr svo lengi að það er vart hægt að fullyrða slíkt og svo eru auðvitað til dæmi um hið gagnstæða. Að auki þá er ekki endilega vænlegt fyrir Kvikmyndamiðstöð Íslands að eltast við vinsældir því listræn gæði og góðar sögur eru það sem á eftir að fleyta íslenskri kvikmyndagerð fram á við þegar konur fá að búa til lítil kraftaverk til jafns við karla.
Tengdar fréttir

Handritshöfundar vilja fulltrúa í Kvikmyndaráð
Handritshöfundar gera fjölmargar athugasemdir við frumvarp um breytingu á kvikmyndalögum. Formaður félags þeirra segir þá vilja aðkomu að sjóðnum og að hlutverk ráðgjafa verði skýrt. Hægt sé að framleiða mun meira en nú er gert.

Fangar og Undir trénu með flest verðlaun
Sjónvarpsþáttaröðin Fangar hlaut tíu verðlaun og kvikmyndin Undir trénu hlaut sjö Eddur.
Skoðun

Handtöskur og fasistar
Ásgeir K. Ólafsson skrifar

Dánaraðstoð á Bretlandseyjum í náinni framtíð
Bjarni Jónsson skrifar

„Vókið“ er dulbúin frestunarárátta:
Gabríel Dagur Valgeirsson skrifar

Vókismi gagnrýndur frá vinstri
Andri Sigurðsson skrifar

Diplómanám er ekki nóg – tími til kominn að endurskoða aðgengi fatlaðs fólks að háskólanámi
Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar

Styrk stjórn gefur góðan árangur
Ásthildur Sturludóttir skrifar

„Bara ef það hentar mér“
Hákon Gunnarsson skrifar

Hvar værum við án þeirra? – Um mikilvægi Pólverja á Íslandi
Svandís Edda Halldórsdóttir skrifar

Fagleg forysta skiptir öllu - Af hverju eru ekki fleiri stjórnendur og leiðtogar að kveikja á perunni?
Sigurður Ragnarsson skrifar

Borgin græna og ábyrgðin gráa
Daði Freyr Ólafsson skrifar

Stalín á ekki roð í algrímið
Halldóra Mogensen skrifar

Sorrý, Andrés
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Er órökréttur skattafsláttur fyrir tekjuháa besta leiðin til að styðja barnafólk?
Ragna Sigurðardóttir skrifar

Gamalt vín á nýjum belgjum
Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar

Mikilvægi skólasafna – meira en bókageymsla
Jónella Sigurjónsdóttir,Þórný Hlynsdóttir,Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Aukinn stuðningur við ESB og NATO
Pawel Bartoszek skrifar

Það á að hafa afleiðingar að níðast á varnarlausu fólki
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Börnin borga fyrir hagræðinguna í Kópavogi
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Hvernig er veðrið þarna uppi?
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Að leita er að læra
Ragnar Sigurðsson skrifar

Vöxtur hugverkaiðnaðar á biðstofunni
Erla Tinna Stefánsdóttir,Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar

Viska: Sterkara stéttarfélag framtíðarinnar
Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar

Þetta er ekki raunverulegt réttlæti
Snorri Másson skrifar

Ábyrgð auglýsenda á íslenskri fjölmiðlun
Daníel Rúnarsson skrifar

Vofa illsku, vofa grimmdar
Haukur Már Haraldsson skrifar

Á að láta trúð ráða ferðinni?
Ingólfur Steinsson skrifar

Kópavogur forgangsraðar í þágu kennara, barna og skólastarfs
Ásdís Kristjánsdóttir skrifar

Ofþétting byggðar í Breiðholti?
Þorvaldur Daníelsson skrifar

Trans fólk er ekki að biðja um sérmeðferð
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hvenær ber fullorðið fólk ábyrð?
Guðrún Ósk Þórudóttir skrifar